12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 24. apríl 2026

Útvarpsfréttir.

Starfsfólki Matvælastofnunnar hefur verið hrint og það barið við störf. Yfirdýralæknir segir hafa færst í aukana að starfsmenn séu áreittir og jafnvel beittir ofbeldi við eftirlitsstörf og fjölskyldum þeirra hótað.

Framleiðsla er hafin að nýju í annarri af tveimur kerlínum Norðuráls á Grundartanga. Forstjórinn á von á að álverið verði komið í fulla framleiðslu í lok júlí.

Donald Trump er sagður vilja reka Spán úr NATO og hætta að viðurkenna Falklandseyjar sem breskt yfirráðasvæði, í refsiskyni fyrir ónægan stuðning við stríðsrekstur Bandaríkjanna í Íran.

Ekkert hefur spurst til Íslendings á sextugsaldri í nær tvær vikur, frá því hann fór af flugvelli í Búdapest í Ungverjalandi.

Þingmaður Hezbollah-hreyfingarinnar segir ekkert vit í að framlengja vopnahlé Ísraels og Líbanons. Íranskir og pakistanskir ráðamenn hafa rætt um vopnahlésviðræður við Bandaríkin.

Samherjamálið sýnir fram á spillingu í Namibíu en ekki á Íslandi segir fjármálaráðherra. Listamaðurinn Odee beindi spjótum sínum aftur að Samherja í vikunni – þrátt fyrir breskan dómsúrskurð.

Fiskeldissjóður hefur úthlutað rúmum hálfum milljarða króna til innviðaframkvæmda í sex sveitarfélögum. Í Farðabyggð verða fjármunir nýttir til virkja sólarorku og kynda fótboltahöll á Reyðarfirði.

Grísk yfirvöld hafa skilgreint fjölda stranda sem viðkvæm svæði og takmarkað aðgang ferðamanna að þeim. Bann við sólhlífum og -bekkjum á að vernda seli og sjófugla.

Besta deild kvenna í fótbolta hefst í kvöld. Íslandsmeistarar Breiðabliks hefja tímabilið á leik gegn Þrótti.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,