Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar í þetta sinn er hljómplatan Rattlesnakes með hljómsveitinni Lloyd Cole and the Commotions sem kom út í október 1984. Hljómsveitin starfaði frá 1982-1989 og náði talsverðum vinsældum á sínum tíma og kom meðal annars til Íslands og spilaði í Laugardalshöll á vegum Listahátíðar Reykjavíkur í júní 1986. Það voru tvennir tónleikar þar sem Lloyd Cole spilaði fyrra kvöldið ásamt bresku hljómsveitinni Simply Red og daginn eftir, eða 17.júní, spiluðu Madness og Fine Young Cannibals. Þessir tónleikar vöktu gríðarlega athygli og áttu án efa stærstan þátt í því að kynna Lloyd Cole and the Commotions fyrir Íslendingum.
A-hlið:
Perfect Skin
Speedboat
Rattlesnakes
Down on Mission Street
Forest Fire
B-hlið:
Charlotte Street
2cv
Four Flights Up
Patience
Are You Ready to Be Heartbroken?
Við enduðum svo vínil vikunnar í þetta sinn á því að heyra tvö aukalög, bæði af annarri plötu sveitarinnar Easy Pieces sem kom út árið 1985, það eru lögin Lost Weekend og Brand New Friend.
Umsjón: Gunnar Hansson
- Endurflutt

Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Í Tónleik að þessu sinni verður flutt frönsk tónlist frá því um aldamót 19. og 20. aldar. Segja má að á þeim tíma hafi Frakkland tekið forystuna í nýjungum á sviðum margra lista, að minnsta kosti bæði í tónlist og myndlist.
Verkin sem flutt verða eru Forleikurinn að síðdegi skógarpúkans eftir Claude Debussy, sem var ótvíræður frumkvöðull í upphafi 20. aldarinnar, Gymnopediurnar eftir Erik Satie, sem einnig var tímamótaverk og Menuett antique og Le Tombeau de Couperin, eða Grafhýsi Couperins eftir Maurice Ravel, en segja má að þeir þrír hafi allir orðið fyrir sterkum áhrifum hver frá öðrum, auk þess sem Debussy og Ravel litu báðir til fortíðarinnar í franskri tónlist í tónsmíðum sínum, til þeirra Rameau og Francois Couperin.
- Endurflutt


frá Veðurstofu Íslands.
Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í þessari sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum.
Hvaðan kom Hafmeyjan og hvernig bar hana að ströndum Íslands? Og hvernig var rætt um verkið í aðdraganda sprengjunnar? Við sögu koma sendiherra og olíukóngur, sjálfstæðismenn í borginni, kalda stríðið og óánægðir módernistar.


Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Íbúar á Kúbu lifa við alvarlegan eldsneytisskort. Nú er sjóðheitt sumarið senn á enda þar sem lítið var hægt að treysta á loftræstingu. Landið sætir lengstu viðskiptaþvingunum í sögunni en í 75 ár hefur verið í gildi mjög strangt eða algjört viðskiptabann af hálfu Bandaríkjanna. Við ræðum við Hafliða Sævarsson um stöðuna á Kúbu, söguna og framtíðarhorfur.
Milljónir hafa fylgst með réttarhöldum yfir bandarísku konunni Lindsey Clancy sem ákærð er fyrir að drepa börnin sín þrjú. Þó málið hafi fengið heljarmikla athygli eru fjölskylduharmleikir sem þessir ekki án fordæma þar vestra. Á þeim sex vikum sem réttarhöldin yfir Clancy stóðu drápu átta karlmenn eiginkonu sína og börn í Bandaríkjunum. Alma Ómarsdóttir kynnti sér málið sem allir eru að tala um.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Félagarnir Tumi Torfason, Hannes Arason, Tumi Árnason og Björgvin Ragnar Hjálmarsson mynda kvartettinn Tu Ha? Tu Bjö! sem sendi frá sér samnefnda plötu fyrir stuttu. Kveikjan að samstarfinu var löngun til að kalla saman tónlistarmenn sem töluðu / spiluðu sama tónmál.
Lagalisti:
Tu Ha? Tu Bjö! - Hrúðurkarlar
Tu Ha? Tu Bjö! - 2 What
Tu Ha? Tu Bjö! - My Mind to Me a Kingdom Is
Tu Ha? Tu Bjö! - Musica ricercata VII.
Tu Ha? Tu Bjö! - Ha! Bjö Sö Tu Tu?
Tu Ha? Tu Bjö! - Bjö Tu! Tu Sö Ha?
Tu Ha? Tu Bjö! - Lækjarniður
Tu Ha? Tu Bjö! - Kanóna
- Endurflutt
Stjórnendur Lestarinnar, þau Lóa og Kristján, kryfja popplög með Friðriki Margrétar Guðmundssyni, tónskáldi, tónlistarmanni og poppmeinafræðingi.
Það eru sumarsólstöður og miðnætursólin verður viðfangsefni popplagakrufningarinnar að þessu sinni.
Lagið Midnight Sun með Zöru Larsson kom út í fyrra á samnefndri plötu, en nýtur enn þvílíkra vinsælda þetta sumarið. Við kryfjum þetta lag sænsku poppprinsessunar.
- Endurflutt

Í þættinum fær Sverrir Norland til sín skemmtilega gesti sem endurhugsa með honum heiminn.
Í fyrri hluta þáttarins koma til Sverris þau Steiney Skúladóttir og Máni Arnarson, sem bæði eru í spunahópnum Improv Ísland og sketsahópnum Kanarí. Þau velta því fyrir sér hvað sé gott grín og Sverrir segir versta brandara sem Steiney hefur heyrt. Í síðari hluta þáttarins kemur svo Ingi Hans Jónsson, sagnaþulur og eftirherma, og ræðir meðal annars Félag íslenskra sagnaþula, þjóðlega fyndni og hvernig móttökuskilyrði fólks breytast milli kynslóða. Má ekkert segja lengur, eru allir orðnir svo agalega viðkvæmir?
Umsjón: Sverrir Norland.
- Endurflutt

Útvarpsfréttir.

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Við blöðum í nýútkominni skáldsögu, Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson. Það er saga af íslenskri samtímafjölskyldu sem er enn að kljást við afleiðingar af sárum missi í fjölskyldunni og nær hún ekki að tengjast á ný. Það ríkir þögn milli fimm náinna fjölskyldumeðlima sem hvert og eitt reynir að fylla upp í hana með ágiskunum og gremju. Rætt verður við Björn Halldórsson um hugmyndir og þemu verksins.
Undanfarið hefur borið á tegund bókmennta sem nýta sér aðrar bækur, oft frægar, sem beinan efnivið. Þetta hefur verið kallað fylgiskáldsögur eða hliðstæðusögur, companion novels og er skylt fan-fiction bókum þar sem aðdáendur teygja sögusvið bókar með eigin skrifum. Sagan er endursögð með nýju sjónarhorni. Einhver gæti sagt að öll sagnagerð sé endurvinnsla, allt er remix. Endurunnar sögur geta minnt okkur á eitthvað mikilvægt í bókum og sett þær í nýtt samhengi. Ein slík fylgiskáldsaga kom út fyrir skemmstu á íslensku, Júlía eftir bandaríska rithöfundinn Söndru Newman, og er endursögn á 1984 Orwells. Við rýnum aðeins í hana í þættinum.
Viðmælendur: Björn Halldórsson
Lesarar: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir, Pétur Eggersson og Halla Harðardóttir.
Tónlist: Strangers - The Kinks, Julia - Eurythmics, A little closer - Skúli Sverrisson, Nocture no. 20 - Michael Kolk.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Tenórsaxófónleikarinn John Coltrane fæddist í Hamlet í norður Karólínufylki Bandaríkjanna 23. september 1926.
Tónlistarferill hans var ekki langur, en hann var nálægt þrítugu þegar hann fór að láta að sér kveða í hljómsveitum Miles Davis og Thelóníusar Monk. Sólóferillinn tók við sér í byrjun sjöunda áratugarins og goðsagnakenndur kvartett hans varð helsta viðmið nútímadjasstónlistarinnar á fyrstu árunum. Sífelld leit Coltranes að sinni rödd í tónlistinni varð til þess að hljóðfæraleikur hans fór langt út fyrir endamörk meginstraumsins og þrátt fyrir að ná mikilli hylli með plötum eins og A Love Supreme - urðu þreifingar hans undir lok ferilsins mörgum mjög framandi. Coltrane lést aðeins fertugur að aldri 1967.
Í þessum fyrri þætti um saxófónmeistarann bregður Pétur Grétarsson upp mynd af uppvexti hans og tónlistarferli fram að fyrstu sólóplötunum.
The Night Has A Thousand Eyes - Jerry Brainin - John Coltrane 1960
The sweetheart of Sigma Chi - Gene Austin - 1936
Warm Valley - Duke Ellington - Johnny Hodges og hljómsveit 1954
Sleep - Earl Bostic og hljómsveit hans 1951
Oleo - Sonny Rollins - Miles Davis kvintettinn 1956
Trinkle, tinkle - Thelonious Monk og John Coltrane 1957
So What - Kind of Blue - Miles Davis sextettinn 1959
Blue train - John Coltrane sextettinn 1958

Fréttir

frá Veðurstofu Íslands
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Jónatan Garðarsson valdi.
Franski söngvarinn og píanóleikarinn Daniel Roure flytur lögin Que reste-il de nos amours?, C'est si bon, C'est magnifique, Bar de nuit, Rien ne change og C'est le Printemps. Tríó ítalska píanóleikarans Massimo Faraò leikur lögin Love Is A Many Splendored Thing, Windmills Of Your Mind, Lara's Theme, Lawrence Of Arabia, Summertime In Venice og La Ragazza Du Bube. Franski saxófónleikarinn David El-Malik leikur lögin And I Love Her, Hallluya, Dem, Blues For Guillaume og Hamelech Nimrod. Bassaleikarinn Benjamin Wolfe flytur lögin Agent Jones, Luke And Leonie, Rufus T. Firefly, Another Poet og Bagdad Theater.
- Endurflutt

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir, Atli Sigþórsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Þáttur um íslenskt mál og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
Þegar fréttir bárust af því að íslenska væri annað tungumálið sem mállíkanið GPT4 talaði braust þjóðarstoltið rækilega út, ekki ósvipað og þegar Íslendingum vegnar vel á stórmótum í íþróttum. Íslenska þótti þarna loksins eiga kost á að standa jafnfætis alheimsmálinu ensku. Einar Freyr Sigurðsson, rannsóknarlektor á orðfræðisviði hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, og Iris Edda Nowenstein, nýdoktor í málvísindum við Háskóla Íslands og talmeinafræðingur á Landspítalanum, eru meðal þeirra sem hafa skoðað hversu vel spjallmennið Chat GPT kann og skilur íslensku.
- Endurflutt
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur, segir frá sínu uppáhalds tónverki.
René Fleming og Thomas Hampson syngja lokadúettinn úr óperu Massenet, Thais. Guiseppe Sabatine stjórnar Þjóðarhljómsveit Bordeaux.
- Endurflutt

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.
- Endurflutt


frá Veðurstofu Íslands
Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Litla flugan sækir sumarhita til Ítalíu og dregur fram tónlist með ítölsk ættuðu tónlistarfólki sem bjó víðsvegar um heiminn. Þátturinn var fyrst á dagskrá 27. október 2005
- Endurflutt

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
- Endurflutt

Útvarpsfréttir.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.



Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.

Útvarpsfréttir.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Nanna Guðrún sér um réttu tónlistina á meðan þú gerir þig til og kemur þér í gírinn á laugardagskvöldi. Popp- og danstónar í bland við sígild stemningslög senda þig dansandi af stað inn í kvöldið.

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
