12:42
Þetta helst
Óeining um Eurovision

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Í dag beinum við sjónum okkar að Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, en fyrra undankvöld keppninnar í ár er í kvöld. Ár hvert skapast mikil stemning í kringum Eurovision hér á landi og keppnin - og aðdragandinn - litar samfélagið mjög - en ekki núna. Enda ákvað Ríkisútvarpið í desember - eftir töluverð mótmæli og ákall um sniðgöngu - að Ísland tæki ekki þátt í keppninni í ár sem haldin er í Vínarborg í Austurríki.

Rætt er við Höllu Ingvarsdóttur, gjaldkera Fáses, og Val Gunnarsson, sagnfræðing, um keppnina og sniðgöngu.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 15 mín.
,