07:03
Morgunvaktin
Íslandssagan, kosningarnar í Svíþjóð og hugvekja um gleði og von

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Út er komin bókin Skattland. Valdstjórn á Íslandi 1281-1551. Höfundur er Sverrir Jakobsson, sagnfræðingur og prófessor í miðaldasögu við Háskóla Íslands. Sverrir sagði frá þessu tímabili í Íslandssögunni en minna hefur verið um það fjallað en mörg önnur tímabil. Noregskonungur fór með völd í landinu en Íslendingar virtu illa lög hans og ákvarðanir og höguðu lífi sínu eftir eigin höfði.

Kosið var til sænska þingsins í gær. Gunnhildur Lily Magnúsdóttir, dósent við Háskólann í Malmö, fór yfir stöðuna en talningu atkvæða var ekki lokið. Útlit er fyrir að stjórnarandstaðan fái fleiri þingsæti en stjórnarflokkarnir en viðbúið að stjórnarmyndun verði snúin þar sem sumir flokkar vilja ekki starfa með öðrum.

Umsjón með morgunbæn og orði dagsins þessa dagana hefur Guðný Hallgrímsdóttir, prestur fatlaðra. Hún kom í kaffi og spjallaði um gleði og von, hjónaband og tilfinningar og starf sitt með fólki með þroskahömlun.

Tónlist:

Etíða nr. 5 e. P. Glass - Víkingur Heiðar Ólafsson,

Flyg vilda fågel - Lisa Ekdahl,

Du sålde våra hjärtan - Lisa Ekdahl,

Nema hvað? - Sálgæslan og Andrea Gylfadóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,