07:03
Morgunvaktin
Norðurlandasamstarf, Berlínarspjall og Sinfó á ferðalagi

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Norrænt samstarf var á dagskrá hjá okkur í dag. Dagur Norðurlandanna var í gær. Dagbjört Hákonardóttir er formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs og situr jafnframt í forsætisnefnd ráðsins. Hún talaði meðal annars um hugsanlega stækkun Norðurlandaráðs; Grænlendingar, Færeyingar og Álendingar vilja fulla aðild.

Arthúr Björgvin Bollason og Berlínarspjallið var á sínum stað á Morgunvaktinni. Í dag sagði Arthúr okkur meðal annars frá Wolfram Weimer sem fer með menningarmál fyrir þýsku ríkisstjórnina; hann er í meira lagi umdeildur fyrir verk sín.

Sinfóníuhljómsveit Íslands er á hljómleikaferðalagi. Að baki eru þrennir tónleikar í Sviss og fram undan tvennir í Þýskalandi. Sveitin leikur í Heildelberg í kvöld. Guðni Tómasson framkvæmdastjóri Sinfóníunnar er með í för; við heyrðum í honum og spurðum auðvitað um viðtökur í Sviss.

Tónlist:

Anne Linnet - Tusind stykker.

Trine Dyrholm - Smuk som et stjerneskud.

Kian Soltani - Stúlkan frá Shiraz.

Berlínarfílharmonían - Flying Theme (from E.T. The Extra-Terrestrial).

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,