Suðurland - Traustholtshólmi
Í þessum þætti keyra Gunnar Karl og Dóri frá Reykjavík í átt að Suðurlandi, koma á áhugaverða staði, hitta fólk sem hefur frá miklu að segja og borða góðan mat. Þeir koma við í Hveragerði,…
Íslenskir lífstíls- og matarþættir þar sem þeir Dóri DNA og Gunnar Karl Gíslason, Michelin-kokkur, ferðast um landið, kynnast áhugaverðu fólki og fræðast um menningu, listir, mat og nýsköpun í nýtingu auðlinda. Á leið sinni á hvern áfangastað safna þeir hráefnum sem Gunnar Karl nýtir til matreiðslu í lok hvers þáttar með dyggri aðstoð heimamanna. Leikstjórn: Hannes Þór Arason. Framleiðsla: Gamli Blakkur, Fígúra og Lilja Jóns.