1. Leikur að læra
Loft snýr endurnært heim frá Satúrnusi, Tenerife veðurguðanna, en afslöppunin endist ekki lengi. Áróra vill vita allt um leikhús og fær að skyggnast á bak við tjöldin. Á meðan kveðja…
Hrekkjavakan er gengin í garð og Loft er svo skíthrætt að það flýr alla leið til tunglsins! Fret sér sér leik á borði og mætir í þess stað, staðráðið í að hrekkja krakkana. Í sumarbúðunum reynir svo heldur betur á taugarnar þegar krakkarnir fara í Bannað að ÖSKRA!... eða hlæja.

Elsti sjónvarpsþáttur landsins snýr aftur með ný ævintýri!
Áróra heldur áfram að kanna heiminn og takast á við ný verkefni. Þegar Máni og fleiri vinir flytja burt tekur nýr kafli við og Áróra kynnist nýjum krökkum í sumarbúðunum. Með Loft og Sjón sér við hlið uppgötvar hún að ný ævintýri bíða alltaf handan við hornið.