
Silfrið
Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Svanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar, Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vg, og Jón Trausti Reynisson, framkvæmdastjóri Heimildarinnar eru gestir Silfursins í kvöld.
Það er af mörgu að taka á vettvangi vikunnar. Hvernig bregst Bandaríkjaforseti við stórsigri demókrata í síðustu viku og hvaða áhrif hefur það á alþjóðamálin? Viðreisn hefur átt í vök að verjast og spjótin beinast að fjármálaráðherra og stjórn Landsvirkjunar. Vinstri græn héldu flokksráðsfund um helgina. Hver er staða vinstrisins, sem hefur verið utanþings í tvö ár? Og Jón Trausti gerir upp arfleifð Davíðs Oddssonar í nýrri bók.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.