
Silfrið
Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Þingkosningarnar á þriðjudaginn gætu valdið straumhvörfum í bandarískum stjórnmálum. Vinsældir Donald Trumps mælast í sögulegu lágmarki og kjósendur gætu látið frambjóðendur repúblikana gjalda þess, jafnvel í ríkjum sem jafnan hafa verið helstu vígi flokksins. En hvað gerist síðan á kjördag, og hverju breytir það ef demókratar ná meirihluta í báðum deildum þingsins? Og hvaða líkur eru á því að forsetinn virði niðurstöður kosninganna?
Gestir Silfursins spá í bandarísku kosningaspilin:
Birna Anna Björnsdóttir rithöfundur í New York
Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri almannatengslafyrirtækisins KOM
Kolbeinn Stefánsson dósent í félagsfræði við HÍ
Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari
Svanhildur Þorvaldsdóttir dósent í stjórnmálafræði við HÍ
Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með þættinum.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.