Iceguys, Elma, hljómsveitin Marsibil og kabarett
Kvikmynda- og sjónvarpsgagnrýnendur Miðstöðvarinnar, Brynja Hjálmsdóttir og Ólafur Alexander, ræða nýju Iceguys-kvikmyndina og þættina Elma í Sjónvarpi Símans premium.
Friðrik Ómar og Elísabet Ormslev ræða menningarfyrirbærið Celine Dion í þættinum. Við spyrjum okkur einnig hvort rokkið sé dautt. Hljómsveitin Hasar kveður allar kenningar um slíkt í kútinn. Svo eru það leikaravinirnir Kjartan Darri og Oddur Júlíusson sem koma í „Risastóru dægurmenningarspurningarkeppnina“ undir lok þáttar.

Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir.