Miðstöðin

Plötubúðardagurinn, HÆST og Guðjón Þorgils

Í Miðstöðinni þessu sinni kynnum við okkur nýja íslenska grínþætti sem heita HÆST og eru í Sjónvarpi Símans. Þættirnir gerast í Menntaskólanum við Sund og við förum í heimsókn þangað og spjöllum við aðstandendur.

Laugardaginn 18. apríl er alþjóðlegi plötubúðardagurinn. Í tilefni þess fáum við til okkar tvo vínylspekúlanta til þess ræða tónlist á föstu formi, þá Snorra Helgason og Ragnar Kjartansson. Við förum líka í heimsókn í plötubúð og tökum stöðuna á plötubúðinni árið 2026.

Í lok þáttar fáum við heimsókn frá upprennandi poppstjörnu, Guðjón Þorgils, sem bar sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna um liðna helgi.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

16. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Miðstöðin

Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.

Þættir

,