Miðstöðin

Ný hlið á Friðriki Dór, tónlistarviðburðir ársins og nýtt lag með Ágústi og Unu Torfa

Í fyrsta þætti Miðstöðvarinnar heimsækjum við Friðrik Dór sem sýnir á sér nýja listræna hlið í fyrsta skipti opinberlega.

Lovísa Rut, útvarpskona á Rás 2, og Sandra Barilli, framleiðandi og skemmtikraftur, kíkja í myndverið og fara yfir stærstu tónlistarviðburði ársins. Hvað á fólk upplifa í ár?

Þátturinn endar svo á Ágústi Þór Brynjarssyni sem sló í gegn í Söngvakeppninni í fyrra. Við förum í heimsókn á Hrafnagil í Eyjafirði þar sem Ágúst býr og svo flytur hann fyrir okkur nýtt lag ásamt tónlistarkonunni Unu Torfa.

Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt.

Birt

9. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Miðstöðin

Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.

,