• 00:01:16Almannavarnabæklingur
  • 00:21:10Í skugga átaka

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Almannavarnabæklingur, bændur á Barðaströnd og sýningin Í skugga átaka.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gaf í dag út bækling þar sem landsmenn eru beðnir að vera viðbúnir. En viðbúnir hverju nákvæmlega og af hverju núna? Runólfur Þórhallsson, sviðstjóri almannavarnasviðs Ríkislögreglustjóra sat fyrir svörum.

Kastljós tók hús á bændum á Barðaströnd sem eru almennt frekar vel undirbúin, enda oft þurft að takast á við ófærð og rafmagnsleysi. Býlið er ekki afskekktara en gengur og gerist á Vestfjörðum, en það er þó um fjallveg að fara til þess að komast í næsta þéttbýli.

Þá var litið inn á listasýninguna Í skugga átaka, sem nú stendur yfir á Listasafni Akureyrar. Hernaður og stríðsátök í Evrópu eru þar til umfjöllunar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.

Þættir

,