• 00:01:16Efnahagshorfur
  • 00:16:59Netöryggisfulltrúi Ástralíu

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Leitin að núllinu, netöryggisfulltrúi býður tæknirisum birginn

Þrátt fyrir lakari afkomu ríkissjóðs en gert var ráð fyrir ætlar ríkisstjórnin að halda markmiði sínu um hallalaus fjárlög til streitu. En er skynsamlegt að eltast við núllið á sama tíma og hagkerfið er að kólna eða ættu stjórnvöld þvert á móti að reyna að örva það? Konráð Guðjónsson hagfræðingur og Már Wolfgang Mixa, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, voru gestir Kastljóss.

Ástralir hafa verið í fararbroddi við að setja samfélagsmiðlum stólinn fyrir dyrnar og verja hagsmuni notenda. Julie Inman Grant, sérstakur netöryggisfulltrúi Ástralíu, hefur boðið tæknirisum birginn og þurft að taka afleiðingum þess. Hún segir að stjórnvöld verði að taka harðari afstöðu gegn fyrirtækjum sem hafi lykiláhrif á börn um allan heim.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.

Þættir

,