
Bækur og staðir 2016
Egill Helgason tengir bækur við ýmsa staði á landinu.
Egill Helgason heimsækir ólíka staði á landinu og fjallar um ritverk og höfunda sem þeim tengjast. Í Vatnsskarði ólst upp Stephan G. Stephansson, sem grét þegar hann horfði á eftir félögum sínum halda til náms. Þarna eyddi Bóluhjálmar sínum hinstu lífdögum og ritaði dapurlegt kvæði undir nafninu Feigur Fallandason. Litið er við á bænum Víðimýri þar sem Kolbeinn Tumason bjó, höfundur ljóðsins Heyr himna smiður sem Þorkell Sigurbjörnsson samdi síðar áhrifamikið lag við. Einnig er litið við á Fjalli þar sem Jakob Benediktsson fæddist og að lokum er rifjað upp atriðið úr kvikmyndinni 79 af stöðinni.

Egill Helgason tengir bækur við ýmsa staði á landinu.