Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Innviðaráðherra sagði um helgina að hann hefði miklar áhyggjur af stöðu Icelandair. Gengi hlutabréfa í félaginu hafði þá lækkað um tuttugu prósent frá áramótum og ekki verið lægra í fimm ár. Talsverðar sveiflur hafa verið á gengi félagsins undanfarna viku sem tengist miklum breytingum á heimsmarkaðsverði olíu en hlutbréfin hækkuðu skarpt við opnun markaða í morgun og hækkunin í dag nam um 12 prósentum. Gestur Kastljóss er Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair.
Við hittum ungan mann á Akureyri sem fann sig í starfstengdu námi á lagernum hjá Johan Rönning. Þar var honum tekið opnum örmum og landið fór að rísa eftir að hann hafði hvorki fundið sig í námi né starfi um nokkurt skeið.
Hver hefur ekki látið sig dreyma um að tæta sundur andleg þyngsli og losa sig þannig við þau varanlega? Nú er það mögulegt í Monstery listaverkefninu í Ámundarsal.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.
Í Landanum í kvöld hittum við ungan mann sem ferðast um heiminn og vinnur fyrir fæði og húsnæði með gítarspili og söng. Við heimsækjum rannsóknarstofu Matís í Neskaupsstað, við hittum ítalskan gelatogerðarmann á Ísafirði og við kynnumst ljósmyndara sem er með Parkinson sjúkdóminn en neitar að leggja frá sér linsuna.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Ríkisstjórnin stefnir á þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB í lok sumar. Skiptar skoðanir eru á málinu, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Ef marka má söguna verður ekki bara tekist á um rök og hagsmuni heldur ekki síður tilfinningar og hughrif.
Nýtt íslenskt rannsóknarverkefni reynir að kortleggja hversu berskjölduð börn og ungmenni eru fyrir hatursorðræðu á netinu. Við kynnum okkur málið.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar hittum við Maó Alheimsdóttur sem er handhafi Fjöruverðlaunanna fyrir ljóðabókina Hvalbak. Maó er pólsk að uppruna, býr á Íslandi, starfar meðal annars sem fjallaleiðsögumaður og skrifar bókmenntir á íslensku. Guðmundur Andri Thorsson ræðir við okkur um Jón Thoroddsen. Hann þótti mikið efni, var á báðum áttum hvort hann ætti að leggja fyrir sig skáldskap eða stjórnmál, sendi frá sér bók með prósaljóðum sem nefnist Flugur. Jón var aðeins 26 ára þegar hann varð fyrir sporvagni í Kaupmannahöfn og lést. Flugur hafa nú verið endurútgefnar með eftirmála Guðmundar Andra. Við spjöllum við Eriku Fatland sem er norskur höfundur ferðabóka – bækur hennar hafa náð metsölu í Noregi og verið þýddar á ein tuttugu tungumál. Meðal annarra verka má nefna Landamærin en þar ferðast hún um öll ríki sem eiga landamæri að Rússlandi. Í Bókum og stöðum förum við norður í Trékyllisvík á Ströndum, á slóðir þar sem meintir galdramenn voru brenndir á sinni tíð. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Söguþætti landpóstanna, Ekkert eftir Janne Teller og Lokar augum blám eftir Margréti S. Höskuldsdóttur. Óvæntur gagnrýnandi leggur okkur lið í umfjölluninni um landpóstana.
Breskt drama í sex þáttum frá 2025 um húsmóður í Lundúnum sem stofnar næturklúbb í Soho-hverfi við lok seinni heimsstyrjaldar til að framfleyta sér og dætrum sínum. Rekstrinum fylgja tíðir árekstrar við bæði glæpagengi og lögregluna. Aðalhlutverk: Julianne Nicholson, Ian Bonar og Fiona Button. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.
Bandarísk heimildarmynd frá 2022 eftir Ninu Menkes. Skoðað er hvernig kvikmyndataka og myndmál kvikmynda endurspeglar kynbundið valdaójafnvægi og hlutgervingu kvenna. Menkes greinir yfir 175 brot úr kvikmyndum frá árunum 1896-2020 og sýnir fram á beina tengingu á milli „hins karllæga sjónmáls“ (e. male gaze) og raunverulegs kynferðisofbeldis og mismunum kvenna á vinnumarkaði. Myndin er byggð á fyrirlestraröð Menkes og varpar nýju ljósi á hvernig við horfum á kvikmyndir. Leikstjóri: Nina Menkes. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 18 ára.
Sænskir leiknir heimildarþættir frá 2023. Farið er yfir sögu Svíþjóðar frá ísöld til dagsins í dag. Yfir 300 sérfræðingar komu að gerð þessarar tíu hluta þáttaraðar þar sem sögulegir viðburðir eru endurskapaðir. Sögumaður: Simon J. Berger. Leikstjórar: Niklas Fröberg og Niklas Vidinghoff.

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Ný íþróttamiðstöð og sundlaug í Búðardal 2. Söngleikurinn Legally Blonde (Ljóska í gegn) frumsýnd í FG.