Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rætt við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formann Viðreisnar, um brotthvarf þingmanna úr flokknum, stöðu flokksins og ríkisstjórnarinnar í kjölfar þessara tíðinda. Einnig er rætt við Vilhjálm Þorsteinsson, stofnanda máltæknifyrirtækisins Miðeindar, sem hlaut á þessu ári verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á Degi íslenskrar tungu.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna. Spyrill er Logi Bergmann Eiðsson. Eggert Þór Bernharðsson er dómari og höfundur spurninga. Stigavörður er Þóra Arnórsdóttir. Andrés Indriðason annast dagskrárgerð.
Lið Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskóla Austurlands á Neskaupstað etja kappi. Keppt er í Menntaskólanum á Akureyri. Keppendur í liði MA: Bjarni Jósep Steindórsson, Bjarki Sigursveinsson og Sindri Kristjánsson. Keppendur í liði Verkmenntaskóla Austurlands: Óskar Ágúst Þorsteinsson, Ævar Unnsteinn Egilsson og Sóley Þórðardóttir.
- Endursýnt
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Sigmar ræðir við Evu Hauksdóttur sem hikar ekki við að setja fram beittar skoðanir og synda gegn straumnum ef þannig ber undir. Hún hefur kallað sig norn og aðgerðarsinna og var framarlega í flokki þeirra sem mótmæltu hvað ákafast í búsáhaldabyltingunni. Sonur hennar, Haukur Hilmarsson, var þar líka áberandi en hans hefur verið saknað í tæp þrjú ár og er talið að hann hafi fallið í sprengjuárás í Sýrlandi þar sem hann barðist með Kúrdum.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Ævintýri Tulipop er skemmtileg þáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop. Á hverjum degi gerast ný ævintýri á eyjunni sem sem geta haft áhrifaríkar afleiðingar í för með sér en vináttuböndin reynast ævinlega traust.
Hlutir byrja að hverfa á Tulipop á dularfullan hátt. Grunur beinist að Fredda þegar Gló, Búi og Maddý finna hlutina sína heima hjá honum. En annað kemur á daginn þegar vinirnir finna greni hinnar goðsagnarkenndu Múlahalasúlu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Íslenskur danshópur vann brons á Special Olympics 2. Rán Flygenring ferðaðist til Úganda Við ljúkum svo þættinum á óvæntum tónleikum Kaleo á Ísafirði🎸
- Dagskrárliðurinn er textaður
Þáttaröð um ungt og áhugavert fólk. Skyggnst er inn í líf einnar persónu hverju sinni og henni fylgt eftir í daglegu lífi sínu. Umsjónarmaður er Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Stjórn upptöku og myndvinnsla er í höndum Eiríks I. Böðvarssonar.
Samkvæmisdansarinn Hanna Rún Óladóttir keppir á heimsmeistaramótinu í suður-amerískum dönsum nú í nóvember. Hún vann fyrsta íslandsmeistaratitil sinn aðeins sex ára og hefur helgað líf sitt dansinum síðan.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Í Kastljósi í kvöld var rætt við Þorstein Víglundsson formann Samtaka iðnaðarins og Eggert Þröst Þórarinsson sérfræðing hjá Acro verðbréfum um þrönga stöðu í efnahagsmálum og vanda á byggingarmarkaði.
Þá var rætt við rússneska tónlistarkonu sem sat í fangelsi fyrir að mótmæla stríðinu í Úkraínu.
Í Kastljósi var rætt við norska leikarann Tobias Sandelmann sem er íslenskum sjónvarpsáhorfendum að góðu kunnur.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Dönsk leikin þáttaröð frá 2024. Allsherjarrýming stendur yfir í Danmörku vegna hækkandi sjávarborðs og þjóðin býr sig undir að yfirgefa heimili sín. Menntaskólaneminn Laura stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun: á hún að fylgja móður sinni, föður eða kærastanum sem hún elskar? Aðalhlutverk: Amaryllis April Maltha August, Albert Rudbeck Lindhardt og Nikolaj Lie Kaas. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Bresk heimildarmynd frá 2025. Fjallað er um brautryðjendastarf listakvenna sem hafa skrásett stríðsátök frá fremstu víglínu víðs vegar um heiminn. Rýnt er í upplifun kvenna af vígvellinum og hvað þær sjá sem karlar sjá ekki. Leikstjóri: Margy Kinmoth. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Þriðja og síðasta þáttaröð þessara sannsögulegu dönsku þátta. Árið er 1968 og þrátt fyrir velgengni carmenrúllanna á heimsvísu er fyrirtækið í fjárhagsvandræðum. Axel þarf að taka stórar ákvarðanir til að bjarga fyrirtækinu, með ófyrirséðum afleiðingum fyrir alla sem standa honum nærri. Aðalhlutverk: Morten Hee Andersen, Maria Rossing, Lars Ranthe og Nicolai Jørgensen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Leikir í bikarkeppni kvenna í handbolta.
Leikur Stjörnunnar og ÍBV í 16-liða úrslitum Powerade-bikars kvenna í handbolta.
- Bein útsending

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
8% fram á næsta ár

Peningastefnunefnd Seðlabankans greinir frá stýrivaxtaákvörðun.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
8% fram á næsta ár