16:30
Ímynd
Listin er löng

Heimildarþáttaröð í sex þáttum þar sem íslensk ljósmyndun er skoðuð út frá sjónarhorni lista, landslags, samtímans, skrásetningar, fréttaflutnings, fortíðar og framtíðar. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Katrín Ásmundsdóttir. Stjórn upptöku og framleiðsla: Hrafnhildur Gunnarsdóttir.

Í þættinum er fjallað um myndlistarljósmyndun. Löngum hefur verið dregið í efa að ljósmyndun geti verið list og þar sem einfalt er að fjölfalda ljósmyndir hefur verðmæti þeirra verið umdeilt. Nokkrir ljósmyndarar á Íslandi hafa þó skapað sér þá sérstöðu að selja myndir sínar sem list og eru jafnvel á mála hjá listagalleríum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 31 mín.
Leyft öllum aldurshópum
  • Dagskrárliðurinn er textaður
  • Endursýnt
,