17:00
Gulli byggir

Þáttaröð þar sem Gunnlaugur Helgason húsasmiður leiðir áhorfendur í allan sannleika um hver fyrstu skrefin eru þegar taka á húsnæði í gegn. Gulli hefur verið fengin til þess að koma lagi á kjallara í 65 ára gömlu húsi í Reykjavík. Óþefur og ýmis konar skordýr hafa hrjáð þá sem kjallarinn hefur hýst um nokkurn tíma og greinilegt er að húsið er komið á tíma. Undir leiðsögn Gulla og fagmanna á hverju sviði vinna íbúar og eigendur húsnæðisins, ásamt vinum og ættingjum að breytingunum. Dagskrárgerð: Hrafnhildur Gunnarsdóttir. Framleiðandi: Krummafilms.

Það þarf að losna við fúann á efri hæðinni og steypa gólfplötuna, en fyrst þarf að saga raufar í gólfið fyrir gólfhitann svo þarf að slípa gólfið og flota. Einnig þarf að hreinsa allt út af baðinu uppi, gera við burðarbita í gólfi á milli hæða og fleira.

Er aðgengilegt til 28. september 2026.
Lengd: 26 mín.
Eingöngu aðgengilegt á Íslandi
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,