Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1994. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Ólafur B. Guðnason. Stigavörður: Sólveig Samúelsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Verzlunarskóla Íslands og Framhaldsskólans á Húsavík. Lið Verzlunarskóla Íslands skipa Hafþór Hafliðason, Haukur Eggertsson og Jón Sigurðsson. Lið Framhaldsskólans á Húsavík skipa Böðvar Jónsson, Álfhildur Eiríksdóttir og Elva Guðmundsdóttir.
Heimildarþáttur um leghálskrabbamein á Íslandi. Í þættinum er rætt er við lækna um meðhöndlun sjúkdómsins og konur segja frá reynslu sinni. Orsök leghálskrabbameins er vel þekkt en það uppgötvast oft seint. Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson.
Ebba Guðný sýnir áhorfendum hversu auðvelt það getur verið að elda hollan og næringarríkan mat úr góðu hráefni. Matreiðsluþáttur fyrir alla fjölskylduna með skemmtilegu fræðsluívafi. Dagskrárgerð: Sævar Sigurðsson. Framleiðandi: Anna Vigdís Gísladóttir fyrir Saga Film.
Í þessum þætti býr Ebba Guðný til ís með aðstoð dóttur sinnar. Einnig útbýr hún mexíkanska súpu, grænmetisböku og súkkulaðiköku án eggja.
Ferðaþættir í umsjón Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall. Að þessu sinni fara þau hjónin með gönguhóp um stórbrotið fjalllendi heima og erlendis. Það reynir á líkama, sál og samheldni í ólíkum tegundum útivistar.
Hópur hlaupara fer milli fjallaskála eftir Stóru-Fjallabaksleiðinni, lítt þekktri en einni glæsilegustu langleið íslenska hálendisins. Leiðin liggur um svartar sandauðnir, litskrúðug fjöll, gróðurvinjar og víðáttur þar sem veður og færð getur breyst á svipstundu.

Vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Kvöldfréttir Sýnar og Ísland í dag hætt 2. Dolly Parton látin. Ljúkum þættinum á pöndutvíburum🐼
Þáttaröð í sex hlutum þar sem fjallað er um sameiginlegar minningar íslensku þjóðarinnar á léttan og nýstárlegan hátt. Umsjónarmennirnir Margrét Blöndal og Felix Bergsson leggjast í fullkomlega óvísindalega mannfræðirannsókn til að reyna að skilja íslensku þjóðina betur. Að þessu sinni skoða þau ýmsa þætti í íslensku mannlífi sem flestir þekkja. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Í þættinum fjalla Bergsson og Blöndal um sambandið við erlent fólk sem vildi sækja okkur heim. Veiðimenn, listamenn, ævintýramenn, stjórnmálamenn, háhyrningar, konungar og drottningar koma við sögu og fá að sjálfsögðu spurninguna „How do you like Iceland?“.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB liggur fyrir. Í Kastljósi kvöldsins gerðum við upp kosningabaráttuna með tveimur sérfræðingum og reyndum að rýna í framhaldið. Þá fórum við á stúfana og tókum púlsinn á fólki. Í lok þáttar kynntumst við frönskum brauðgerðarmanni sem er margt til lista lagt.
Dönsk glæpaþáttaröð frá 2026. Þegar lögreglunemi skýtur ungan mann við handtöku vakna upp spurningar um valdbeitingu og þjálfun lögreglunnar. Þrýstingur á nýjan skólastjóra lögregluskólans eykst og bæði nemendur og starfsfólk þurfa að horfast í augu við þá miklu ábyrgð sem fylgir því að klæðast einkennisbúningi lögreglunnar. Aðalhlutverk: Marco Ilsø, Clara Rosager og Lene Maria Christensen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Lögreglumaðurinn Andri Ólafsson snýr aftur í annarri þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Reynt er að ráða iðnaðarráðherra af dögum á Austurvelli og Andra er falið að stýra rannsókn málsins sem leiðir hann á kunnugar slóðir norður á landi. Ýmis leyndarmál leynast í sveitunum í kring og þegar starfsmaður jarðvarmavirkjunar finnst myrtur er ljóst að málið er umfangsmeira en það virtist í fyrstu. Leikstjórn: Baltasar Kormákur, Börkur Sigþórsson, Ugla Hauksdóttir og Óskar Þór Axelsson. Aðalhlutverk: Ólafur Darri Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson. Framleiðsla: RVK Studios. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Fólkinu í bænum er meinað að nota kranavatn eftir að dauðir fiskar fundust í vatninu uppi á heiði. Fulltrúi erlenda álfyrirtækisins mætir til að skoða framkvæmdir við virkjunina en atburðir undanfarinna daga geta haft áhrif á áform um álverið. Rannsóknin tekur óvænta stefnu þegar Þórhildur, dóttir Andra, segir lögreglunni frá leyndarmáli.
Fjórða og síðasta þáttaröðin um ítölsku vinkonurnar Elenu og Lilu. Þættirnir eru byggðir á Napólí-sögum rithöfundarins Elenu Ferrante, sem farið hafa sigurför um heiminn. Vinkonurnar eru á fullorðinsaldri og lifa ólíku lífi en vináttan heldur enn. Aðalhlutverk: Alba Rohrwacher, Irene Maiorino og Fabrizio Gifuni. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Leiknir norskir þættir byggðir á sönnum atburðum. Vinirnir Benjamin og Elias eru 15 ára og horfa spenntir til framtíðar. Einn örlagaríkan janúardag árið 2001 breytir skelfilegur atburður öllu. Aðalhlutverk: Sam Ashraf, Emil Stenseth, Torbjørn Aamodt og Lee Boardman. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.