13:30
Á valdi náttúruaflanna (1 af 2)

Íslenskir heimildarþættir um náttúruhamfarir á Norðurlöndunum og viðbrögð við þeim. Náttúruhamfarir eru nú þegar orðnar tíðari og ofsafengnari um allan heim vegna loftslagsbreytinga. Hvað má læra af því hvernig tekist er á við skógarelda í Finnlandi, skriðuföll í Noregi, sjávarflóð í Svíþjóð, ofsarigningu í Danmörku og jarðskjálfta, eldgos og snjóflóð á Íslandi? Hvernig drögum við úr skaðanum og aukum seiglu og viðnámsþrótt samfélaga til að takast á við þessar hættur?

Fjallað er um hvernig Norðurlandaþjóðir takast á við náttúruhamfarir. Fylgst er með kvikleirsskriðu í Gjerdrum í Noregi, eldgosum og viðbúnaði á Íslandi og vaxandi flóðahættu í suðurhluta Svíþjóðar. Í gegnum frásagnir sjónarvotta og sérfræðinga er varpað ljósi á mikilvægi undirbúnings, samvinnu og þekkingar til að draga úr afleiðingum hamfara.

Er aðgengilegt til 27. júní 2027.
Lengd: 52 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,