
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt

Róbert og hressu hvolparnir í Hvolpasveitinni eru komin aftur og takast á við ný verkefni og nýja þorpara eins og þeim einum er lagið.

Huggulegir þættir þar sem snjómaðurinn les úr sínum uppáhaldsbókum fyrir litlu mýsnar í bókabúðinni.

Krúttlegir teiknimyndaþættir um litla hafbúa sem eru saman í bekk og elska að syngja og dansa. Kennarinn þeirra er hress gullfiskur sem kennir þeim ýmislegt um lífið og tilveruna.

Teiknimyndaþættir um moldríku öndina Jóakim aðalönd, seinheppna frænda hans, Andrés önd, og félaga þeirra í Andabæ.

Töfratú er fantasíuland dásamlegra álfa og hafmeyja þar sem raunveruleg viðfangsefni á borð við systkinaerjur, sanngirni og sjálfstraust eru könnuð nánar.

Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist og njóta tónanna sem óma um Hljómbæ.
Þáttaröð frá 2013 úr smiðju Ævars Vísindamanns. Ævar er nú kominn í nýja og enn stærri tilraunastofu í samstarfi við Sprengjugengið hjá HÍ, Marel og Vísindavefinn. Íslenskt hugvit verður haft að leiðarljósi, alvöru- og ímyndaðir vísindamenn birtast ljóslifandi fyrir augum áhorfenda og gerðar verða lífshættulegar tilraunir, þegar Ævar þorir. Dagskrárgerð: Eggert Gunnarsson.

Þættir frá 2011 þar sem fjallað er um klassíska- og samtímatónlist í víðum skilningi og leitast við að kynna hana á skemmtilegan, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt. Tónlistarfólk kemur saman í stúdíói, spjallar um tónverk og leikur þau líka. Þá er rætt við sérfræðinga og áhugamenn úr ýmsum áttum. Umsjónarmenn eru Víkingur Heiðar Ólafsson og Halla Oddný Magnúsdóttir. Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson og Viðar Víkingsson.
Þriðji þáttur Útúrdúrs ber yfirskriftina Brahms og Schoenberg - tilfinningar og tónminni. Í titlinum er teflt saman andstæðum sem, þegar betur er að gáð, reynast ef til vill ekki andstæður heldur þræðir í sama vef.

Dönsk matreiðsluþáttaröð. Mette Blomsterberg reiðir fram kræsingar sem henta vel á sumrin.

Veiðiþættir í umsjá bræðranna Gunnars og Ásmundar Helgasona. Í þáttunum fara þeir á ýmsa veiðistaði, fá aðstoð sérfræðinga og heimafólks og veiða meðal annars ísaldarrurriða á flugu, þorsk af kajak, lax á Vesturlandi, silung á fjöllum og hákarl úr fjöru. Þeir elda allt sem þeir veiða, þó við misjafnar aðstæður og með misjöfnum árangri. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Nú fer Veiðikofinn vestur á firði til að kynna sér sjóstangaveiði. Gunnar og Ásmundur dorga af bryggjunni í Bolungarvík og fara svo á kajak út á Skutulsfjörð að renna fyrir skötu. Að lokum er aflinn eldaður og bræðurnir syngja inn í nóttina.

Heimildarmynd um Ásgeir Elíasson, einn sigursælasta knattspyrnuþjálfara landsins, sem lést fyrir aldur fram árið 2007. Hann gerði Fram að stórveldi og vann glæsta sigra með íslenska landsliðinu. Samferðamenn hans rifja upp sögu hans, innan sem utan vallar. Rætt er um þjálfun, vináttu, keppnisskap, fjölskyldustemningu og þá sýn að það verði að vera gaman í fótbolta. Umsjón: Logi Bergmann Eiðsson.
Íslenskir heimildarþættir um náttúruhamfarir á Norðurlöndunum og viðbrögð við þeim. Náttúruhamfarir eru nú þegar orðnar tíðari og ofsafengnari um allan heim vegna loftslagsbreytinga. Hvað má læra af því hvernig tekist er á við skógarelda í Finnlandi, skriðuföll í Noregi, sjávarflóð í Svíþjóð, ofsarigningu í Danmörku og jarðskjálfta, eldgos og snjóflóð á Íslandi? Hvernig drögum við úr skaðanum og aukum seiglu og viðnámsþrótt samfélaga til að takast á við þessar hættur?
Fjallað er um hvernig Norðurlandaþjóðir takast á við náttúruhamfarir. Fylgst er með kvikleirsskriðu í Gjerdrum í Noregi, eldgosum og viðbúnaði á Íslandi og vaxandi flóðahættu í suðurhluta Svíþjóðar. Í gegnum frásagnir sjónarvotta og sérfræðinga er varpað ljósi á mikilvægi undirbúnings, samvinnu og þekkingar til að draga úr afleiðingum hamfara.
Breskir gamanþættir frá 2022 um hina óviðjafnanlegu Jessop-fjölskyldu. Daglegt líf þeirra er heldur óreiðukennt og yngsti sonurinn Sam festir það allt á filmu. Aðalhlutverk: Katherine Parkinson, Jim Howick og Freya Parks. Handritshöfundur: Tom Basden.

Beinar útsendingar frá jazztónleikum á Jómfrúnni við Lækjargötu í Reykjavík. Í 30 ár hefur veitingastaðurinn staðið fyrir jazztónleikum á Jómfrúartorginu á hverjum laugardegi yfir sumartímann. Á meðal listamanna sem fram koma eru Tómas R. Einarsson, Silva Þórðardóttir, Anna Gréta Sigurðardóttir, Selma Björnsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir.
Fyrsti listamaðurinn sem treður upp á Jómfrúartorginu er Tómas R. Einarsson. Hljómsveit hans skipa þeir Snorri Sigurðsson, Daði Birgisson og Kristofer Rodriguez Svönuson. Þá mun Bogomil Font tryggja að tónlistin hreyfi lendarnar á sólþyrstum gestum.

Menningarþættir fyrir ungt fólk frá 2002-2003. Í þáttunum er m.a. fjallað um tónlist og mannlíf, kynntar ýmsar starfsgreinar og fastir liðir eins og dót og vefsíða vikunnar verða á sínum stað.
Umsjón: Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og Vilhelm Anton Jónsson.
Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson og Hjördís Unnur Másdóttir.

Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Í álögum Guðrúnar gleypir Rauðkembingur Ormhildi, Álf og Kisa. Þau festast í maga ormsins ásamt pínulitlum Nadda. Hallgrímur tekur aftur völdin á Breiðholtseyju og fer fyrir vonlausri árás á ormana.

Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir.
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?

Þættir um óteljandi ævintýri Strumpanna og Kjartans galdrakarls sem fara hér á kostum í Strumpabæ.

Sænskir þættir frá 2021. Fjölskyldur prófa alls kyns afþreyingu í von um að finna áhugamál sem öll fjölskyldan getur stundað saman.

Lottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi flutningur Of Monsters and Men á plötunni All is Love and Pain in the Mouse Parade. Í september 2025 buðu hljómsveitarmeðlimir fjölskyldum sínum og vinum í stúdíóið sitt til að hlýða á flutning plötunnar í fyrsta sinn.

Umfjallanir um leiki á HM karla í fótbolta.
Upphitun fyrir leik Panama og Englands og leik Króatíu og Gana á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Panama og Englands á HM karla í fótbolta.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Kólumbíu og Portúgal á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Jórdaníu og Argentínu á HM karla í fótbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Umfjallanir um leiki á HM karla í fótbolta.
Upphitun fyrir leik Panama og Englands og leik Króatíu og Gana á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Króatíu og Gana á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Kongó og Úsbekistan á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Alsír og Austurríkis á HM karla í fótbolta.