
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Gervigreind er þegar farin að hafa áhrif á hvernig við vinnum og spáð er að áhrif hennar á vinnumarkaðinn eigi eftir að verða víðtæk. En hverjir hagnast á því og hverjir tapa? Verður gervigreind til þess að draga úr ójöfnuði, auka hann eða búa jafnvel til nýja tegund ójöfnuðar? Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði við HÍ, og Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörður, ræða áhrif gervigreindar á vinnumarkað og réttlát umskipti.
Enn sér ekki fyrir endann á húsnæðisvandræðum Samhjálpar. Ár er síðan kaffistofa samtakanna missti húsnæði sitt í Borgartúni. Framkvæmdir við húsnæði á Grensásvegi, sem Samhjálp fær ekki að nota, hafa kostað samtökin 70 milljónir króna.
Karlakór Eyjafjarðar á 30 ára afmæli og heldur upp á það með stórtónleikum. Við lítum á æfingu.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending