Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1987. Umsjón: Hermann Gunnarsson og Elísabet Sveinsdóttir. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.
Úrslitaþáttur. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti mætir Menntaskólanum við Sund. Lið Fjölbrautaskólans í Breiðholti skipa Ármann Þorvaldsson, Bjarki Hjálmarsson og Kjartan Ólafsson. Lið Menntaskólans við Sund skipa Ármann Jakobsson, Ingvar Hákon Ólafsson og Sverrir Jakobsson.
Heimildarþáttaröð um sögu norrænnar hönnunar á síðustu hundrað árum. Í þáttunum er meðal annars rætt við hönnuði og safnara sem veita innsýn í sögurnar á bak við heimsþekkta hönnunarmuni. Í hverjum þætti er fjallað um ákveðið tímabil á árunum 1925 til 2025. Þulur: Guðrún Sóley Gestsdóttir.
Sænskir heimildarþættir frá 2021. Stór hluti daglegs lífs okkar er stafrænn - en hversu örugg er staða okkar í stafrænum heimi? Í þáttunum taka þrautreyndir tölvuhakkarar sig til og brjótast inn í tölvur hjá einstaklingum og fyrirtækjum, bara til að sýna okkur hinum hversu sáraeinfalt það er að komast yfir gögn - og líf - fólks með því að hakka tilveru þeirra.
Þættir frá 2014 þar sem íslenskar hljómsveitir og tónlistarmenn flytja lög í myndveri RÚV. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson og upptöku stjórnaði Helgi Jóhannesson.
Kyriama family, Skítamórall, Una Stef og Júníus Meyvant.
Ofurkraftar náttúrunnar lifna við! Sprenghlægileg og fróðleg þáttaröð fyrir krakka sem sýnir undur dýranna og hvers vegna við ættum að vernda heiminn þeirra.
Í tilraunastofunni hjá Lísu gerist ýmislegt áhugavert. Ungir krakkar koma í heimsókn og hanna sínar eigin uppfinningar með henni og gera trylltar tilraunir.
Stutt umfjöllun Sumarlandans sem var á flakki sumarið 2023 og hitti landann fyrir í sínu náttúrulega umhverfi, uppi á fjöllum, úti í garði, inni í skógi og allt um kring.
Norskir heimildarþættir frá 2023. Fylgst er með fólki sem hefur elt drauma sína um einfaldara líf og býr nú á afskekktum stöðum fjarri ys og þys borgarlífsins.