18:25
Úti II (4 af 6)
Ermarsund og krakkaútilega

Ferðaþættir í umsjá útivistarhjónanna Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall þar sem þau ferðast með fólki um ósnortna náttúru Íslands.

Í sumarlok í fyrra lögðu 6 konur það á sig að synda í boðsundi yfir Ermarsundið. Viðureign þeirra við sundið mikla, háa öldutoppa og sjóveiki reyndi mikið á þolgæði og samstöðu hópsins. Þetta er saga þjáninga, hláturs og gráturs. Í síðari hluta þáttarins er fylgst með 4 hressum krökkum skipuleggja og upplifa sitt eigið útivistarævintýri í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,