Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar förum við í Stykkishólm og fjöllum um skáldið Júlíönu Jónsdóttur. Þar bjó Júlíana um skeið og var þá fyrst íslenskra kvenna til að gefa út skáldverk - ljóðabók sem nefnist Stúlka. Það var árið 1878. Nú er komið út heildarsafni ljóða Júlíönu. Við segjum líka frá árlegri bókmenntahátíð sem haldin er í Stykkishólmi og nefnist einmitt Júlíana. Hún verður haldin um næstu helgi. Viðmælendur okkar eru Gréta Sigurðardóttir, sem stendur á bak við bæði útgáfu ljóðabókarinnar og bókmenntahátíðina, og Ellert Kristinsson sem hefur látið gera upp húsið sem Júlíana bjó í. Arndís Þórarinsdóttir rithöfundur segir okkur frá uppáhaldsbókum sínum. Magnús Lyngdal Magnússon spjallar um nýja bók sína sem nefnist Ópera: Á ferðalagi um sögu listformsins og við skoðum búta úr völdum óperum. Tómas Ævar Ólafsson ræðir um útvarpsþætti sem hafa vakið mikla athygli á Rás 1 - þar er rýnt í bækur Halldórs Laxness undir yfirskriftinni Aldrei las ég Laxness. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Minnisblöð veiðimanns eftir Ívan Túrgenév, Yrpu eftir Hildi Knútsdóttur og Sjáanda eftir Ester Hilmarsdóttur. A
