Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Fimmtíu starfsmönnum Reykjavíkurborgar var sagt upp í dag. Þetta er þriðja uppsagnarhrinan síðan nýr meirihluti tók við í vor og alls hefur 130 stöðugildi verið lögð af. Fulltrúar í minnihluta borgarinnar gagnrýna uppsagnirnar og segja þær óígrundaðar og geti bitnað á þjónustu við borgarbúa. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, eru gestir Kastljóss.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1999. Spyrill: Logi Bergmann Eiðsson. Dómari og spurningahöfundur: Illugi Jökulsson. Stigavörður: Þóra Arnórsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum úrslitaþætti mætast lið Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Hamrahlíð. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa Sverrir Guðmundsson, Arnar Þór Stefánsson og Hjalti Snær Ægisson. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Fjalar Hauksson, Inga Þóra Ingvarsdóttir og Jón Árni Helgason.
- Endursýnt
Þáttaröð um eyðibýli á Íslandi. Þar sem á árum áður voru reisulegir sveitabæir með iðandi mannlífi standa nú húsin tóm. Rætt er um byggingu bæjanna og talað við fólk sem tengist stöðunum á einn eða annan hátt. Farið er í Suðurhús í Suðursveit, Hamra á Mýrum, Múlakot í Fljótshlíð, Öxney á Breiðafirði, Heiði á Langanesi og Vatnshorn í Skorradal. Umsjónamaður er Guðni Kolbeinsson og dagskrárgerð annaðist Björn Emilsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Graskersþátturinn mikli🎃
1. Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg 2. Krakkaskýring: grasker 3. Skelfikerfið.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Þáttaröð um ungt og áhugavert fólk. Skyggnst er inn í líf einnar persónu hverju sinni og henni fylgt eftir í daglegu lífi sínu. Umsjónarmaður er Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Stjórn upptöku og myndvinnsla er í höndum Eiríks I. Böðvarssonar.
Við kynnumst knattspyrnulífinu hjá Gylfa Þór Sigurðssyni sem leikur með enska úrvaldsdeildarliðinu Tottenham. Ragnhildur Steinunn ræðir við Gylfa um lífið utan fótboltans og framtíð hans hjá Tottenham.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Vikinglottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Helstu íþróttafréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rætt við Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, um leigubremsu og önnur mál sem hann stendur fyrir. Rætt við Ejler Borch, 101s árs andspyrnuhetju frá Danmörku, síðasta andspyrnumanninn úr síðari heimsstyrjöldinni sem enn er á lífi. Þá er danssýningin Púðlusafnið á dagskrá.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Dönsk leikin þáttaröð frá 2024. Allsherjarrýming stendur yfir í Danmörku vegna hækkandi sjávarborðs og þjóðin býr sig undir að yfirgefa heimili sín. Menntaskólaneminn Laura stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun: á hún að fylgja móður sinni, föður eða kærastanum sem hún elskar? Aðalhlutverk: Amaryllis April Maltha August, Albert Rudbeck Lindhardt og Nikolaj Lie Kaas. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Danskir heimildarþættir frá 2026 um svik og spillingu í listaheiminum. Svissneskur listaverkasali og rússneskur ólígarki byggja upp eitt stærsta listaverkasafn heims. Þegar samstarf þeirra snýst upp í andhverfu sína skekur það listaheiminn allan. Leikstjóri: Andreas Dalsgaard.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Þriðja og síðasta þáttaröð þessara sannsögulegu dönsku þátta. Árið er 1968 og þrátt fyrir velgengni carmenrúllanna á heimsvísu er fyrirtækið í fjárhagsvandræðum. Axel þarf að taka stórar ákvarðanir til að bjarga fyrirtækinu, með ófyrirséðum afleiðingum fyrir alla sem standa honum nærri. Aðalhlutverk: Morten Hee Andersen, Maria Rossing, Lars Ranthe og Nicolai Jørgensen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Kveikur er fréttaskýringaþáttur með áherslu á rannsóknarblaðamennsku. Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Hákon Pálsson, Helgi Seljan, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson og Sunna Karen Sigurþórsdóttir.
Börn með fjölþættan vanda hafa árum saman verið vistuð í einkareknum búsetuúrræðum. Velta úrræðanna hleypur á milljörðum árlega. Aðstandendur og fyrrverandi starfsmenn lýsa veruleika barna sem fá takmarkaða faglega aðstoð. Kveikur skoðar hvernig markaðurinn varð til og hver fylgist með honum.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.