19:45
20 og eitthvað (2 af 6)

Ný íslensk grínþáttaröð eftir Arnór Björnsson, Óla Gunnar Gunnarsson og Vigdísi Hafliðadóttur. Þrjú ungmenni takast á við þær áskorarnir sem fylgja þrítugsaldrinum; háskólann, vinnumarkaðinn, sambandsdrauga, rappara og glataða æskudrauma. Hér mætir íslenskur veruleiki óbeisluðu ímyndunarafli. Þættirnir skarta sex frumsömdum lögum eftir FLOTT. Aðalhlutverk: Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson og Vigdís Hafliðadóttir.

Diljá fær ritstíflu þegar hún kemst að því að það er stutt í einstaklingsverkið hennar. Janus fær nóg af túristum í starfi sínu sem leiðsögumaður. Teitur fær sýndarveruleikagleraugu. Ofan á þetta þurfa þau öll að tækla verstu spurningar allra tíma: „Hvernig ertu? Hvað ertu að gera?“

Er aðgengilegt til 27. ágúst 2026.
Lengd: 24 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,