
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Serían gerist í litríkum og súrsætum skrímsla heimi þar sem fjölbreytt skrímsli búa í sátt og sæti. Í hverjum þætti kynnumst við nýju skrímsli sem býr yfir vægast sagt sérstökum eiginleikum. Kíkjum við og sjáum hvað setur, kannski við getum kynnst þeim aðeins betur.
Hláturskrímslið er ólíkur öðrum skrímslum. Hann er jafn stór og risaháhýsi og virðist finnast flest allt bráðfyndið. Hann hlær svo hátt að jörðin hristist, hús hrynja og það heyrist í honum til næstu landa. En hann notar að minnsta kosti sólarvörn, það er eitthvað.
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi hefur áhyggjur af því að gosdósin sem dóttir hans vill drekka úr springi ef hún opnar hana. Hann verður að ná dósinni áður en eitthvað hræðilegt gerist, en það er hægara sagt en gert.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.

Þættir um óteljandi ævintýri Strumpanna og Kjartans galdrakarls sem fara hér á kostum í Strumpabæ.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Þyrstur og uppgefinn kemur hópurinn að vin í eyðimörkinni. Þau falla niður í kongungsríki nykranna. Eftir að hafa borðað matinn þeirra fara Brynhildur og Guðrún að tala á nykurtungu en Ormhildur virðist ónæm fyrir þessum göldrum. Hún fær óvænt hjálp frá agnarsmáu nátttrölli sem heitir Kubbur. Nykurkóngurinn vill að þau verði sendiherrar og fái íbúa Breiðholtseyju til að hætta að notfæra sér nykrana á eyjunni. Álfur, sem er orðinn skeggjaður, sér þau skjótast út úr vininni.

Náttúrulífsþættir frá BBC um stórbrotna náttúru og dýralíf Skandinavíu.
Hildur Vala Baldursdóttir tekur á móti góðum gestum í nýjum skemmtiþætti þar sem boðið er upp á skemmtiatriði í beinni útsendingu í bland við upptekin atriði og lifandi tónlistarflutning. Tónlistarstjóri: Magnús Jóhann Ragnarsson. Leikstjórn: Allan Sigurðsson, Hannes Þór Arason og Hannes Þór Halldórsson. Framleiðsla: Atlavík.
Kafað ofan í framlög Íslands í keppnina sem við getum ekki unnið, Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Gestastjórnendur eru Sóli Hólm og Friðrik Dór.
Íslensk heimildarþáttaröð í fjórum hlutum um mannskæð snjóflóð sem féllu á byggðina í Norðfirði 20. desember 1974 og sópuðu burt öllu sem á vegi þeirra varð.
Í þættinum er fjallað um seinna flóðið, áfallið sem fólk varð fyrir, óvissuna um fleiri flóð og óttann við veðrahaminn.

Sænskir heimildarþættir frá 2023 um fornleifafundi í Svíþjóð. Bátagrafir frá víkingaöld sem fundust fyrir utan Uppsali hafa leitt ýmislegt í ljós, bæði um ferðalög á víkingaöld og stríðsmenn Eiríks sigursæla Svíakonungs. Þar að auki er fjallað um fjársjóð sem fannst í skógi nálægt Alingsås sem reyndist stærsti bronsaldarfundur í Svíþjóð.

Leikur Víkings og Vestra í Meistarakeppni karla í fótbolta.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
það er að venju fjölbreyttur og fróðlegur Kiljuþáttur á miðvikudagskvöld. Eva Björg Ægisdóttir segir frá spennusögunni Myrkravaldi sem hún skrifar ásamt frönskum rithöfundi, Jérôme Loubry að nafni. Við fjöllum um merkilegan mann en allsendis óþekktan, Guðmund Arnfinnsson - en um hann flytur Kristján Guðjónsson útvarpsþátt á Rás 1 á páskadag. Guðmundur var bók- og listhneigður einfari, samdi kvæði og vísur, málaði og batt inn bækur, og kom sér upp gríðarlegu bókasafni. Það er nú varðveitt á Hraunhálsi á Snæfellsnesi, í vélaskemmu sem hefur verið breytt í bókahús. Við brugðum okkur þangað og spjöllum við húsráðanda, Jóhannes Eyberg Ragnarsson. Hrannar Bragi Eyjólfsson hefur ritað ævisögu afa síns, séra Braga Friðrikssonar, og segir okkur frá henni. Í Bókum og stöðum förum við í Árneshrepp á Ströndum þar sem verða á vegi okkar Hrafn Jökulsson, Vigdís Grímsdóttir og Þórður kakali. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Silfurgengið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, Vininn eftir Sigrid Nunez og Líf eftir Reyni Finnberg Grétarsson.
Stuttir fræðsluþættir um fæðuofnæmi og fæðuóþol. Ungmenni sem þjást af slíku deila reynslu sinni auk þess sem rætt er við ofnæmislækna og aðra sérfræðinga. Framleitt af Skot í samvinnu við Astma- og ofnæmisfélag Íslands.
Kalli og Anna deila reynslu sinni af því að vera ungmenni með fæðuofnæmi og fæðuóþol. Leikstjóri: Einar Egilsson. Leikarar: Arnaldur Halldórsson og Emelía Þórunn Egilsdóttir.


Þriðja þáttaröðin um hina vinsælu Blæju og Hælbein fjölskylduna. Daglegt líf fjölskyldunnar gengur sinn vanagang, en hins vegar er enginn dagur eins þegar Blæja og Bára eiga í hlut.
30 mínútna þáttur

Samansafn atriða þar sem krakkar sýna listir sínar í dansi, allt frá samkvæmisdönsum til freestyle.
Krakkar á námskeiðinu Krakkagleði á Seltjarnarnesi sem haldið er á vegum Danssmiðjunnar dansa við lög frá Afríku. Danskennarar: Jóhann Örn Ólafsson, Theódóra Sæmundsdóttir og Hrafnhildur Ólafsdóttir.
Hljómskálinn snýr aftur, fullur langt út úr dyrum af nýjum viðtölum, nýjum andlitum og nýrri íslenskri tónlist. Sigtryggur Baldursson og Una Torfadóttir yfirheyra íslenskt tónlistarfólk og greiningardeildin kryfur bransann til mergjar. Framleiðsla: Stjörnusambandsstöðin.
Við ræðum við tónlistarfólk sem vill alltaf meira. Rokktónlist þar sem allar nóturnar eru spilaðar, hlaðnar útsetningar, risakórar og miklar sviðsetningar. Loks flytja Bríet og Sinfóníuhljómsveit Íslands nýtt tónverk þar sem meira verður enn meira.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.

Nýir íslenskir heimildarþættir eftir Láru Zulima Ómarsdóttur. Hvernig er að búa í nánum tengslum við náttúruna? Hvað er það í náttúrunni sem kallar svo sterkt á suma? Lára kynnist viðmælendum sínum og fer með þeim á þeirra uppáhaldsstaði, þar á meðal leynistaði sem fáir þekkja. Hún sýnir svo bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard þessar einstöku náttúrugersemar, en hann sérhæfir sig í ljósmyndun á köldum slóðum. Framleiðsla: Zulima ehf.
Helga Björg Ingimarsdóttir býr á bænum Höfnum, nyrst á Skaga. Bærinn stendur við ysta haf og er jörðin rík af fuglalífi og sel, sérkennilegum klettamyndunum og náttúrufegurð. Helga Björg segir náttúruna vera ástæðuna fyrir því að hún settist þarna að. Auk þess er náttúrugimsteinn á landareigninni þar sem hún getur setið tímunum saman og hlustað á fuglana og öldugjálfrið. Þá fer Lára með bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard um Hafnir.
Leikin þáttaröð frá 2024 byggð á samnefndri skáldsögu eftir Alexandre Dumas. Sjómaðurinn Edmond Dantè er svikinn af þremur mönnum og ranglega fangelsaður á eyju við strendur Marseille. Mörgum árum síðar tekst honum að flýja fangelsið og leitar uppi fjársjóð sem samfangi hans sagði honum frá. Hann hefur nýtt líf undir dulnefninu greifinn af Monte Cristo og er staðráðinn í að ná fram hefndum á mönnunum sem sviku hann. Aðalhlutverk: Sam Claflin, Mikkel Boe Følsgaard og Ana Girardot. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Sannsöguleg bandarísk mynd frá 2023 í leikstjórn Alejandros Monteverde. Fyrrverandi ríkislögreglumaður tekur að sér hættusamt og átakanlegt verk sem felur í sér að bjarga hundruðum barna frá mansali. Aðalhlutverk: Jim Caviezel, Mira Sorvino og Bill Camp. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Íslandsmeistaramótið í sundi í 50 metra laug í Ásvallalaug í Hafnarfirði.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.