Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Þyrstur og uppgefinn kemur hópurinn að vin í eyðimörkinni. Þau falla niður í kongungsríki nykranna. Eftir að hafa borðað matinn þeirra fara Brynhildur og Guðrún að tala á nykurtungu en Ormhildur virðist ónæm fyrir þessum göldrum. Hún fær óvænt hjálp frá agnarsmáu nátttrölli sem heitir Kubbur. Nykurkóngurinn vill að þau verði sendiherrar og fái íbúa Breiðholtseyju til að hætta að notfæra sér nykrana á eyjunni. Álfur, sem er orðinn skeggjaður, sér þau skjótast út úr vininni.
