Þáttaröð í sex hlutum þar sem fjallað er um sameiginlegar minningar íslensku þjóðarinnar á léttan og nýstárlegan hátt. Umsjónarmennirnir Margrét Blöndal og Felix Bergsson leggjast í fullkomlega óvísindalega mannfræðirannsókn til að reyna að skilja íslensku þjóðina betur á hundrað ára afmæli fullveldisins. Meðal þess sem þau skoða eru dellurnar sem þjóðin hefur gengið með í gegnum tíðina, nekt á Íslandi, og svo verða séríslensku sunnudagarnir sérstaklega kannaðirr. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Bergsson og Blöndal velta fyrir sér listrænum og minna listrænum dónaskap í gegnum tíðina. Þjóðin stóð á öndinni yfir Panhópnum, nektardansmeyjum sem fylgdu íslenskum sveitaballahljómsveitum og Japana sem dansaði hvítmálaður og nakinn á Lækjartorgi. Við sögu koma einnig kvikmyndirnar Táknmál ástarinnar og Veldi tilfinninganna og uppnámið sem varð í kringum þær. Spurningin er - hvenær er dónaskapur listrænn og hvenær ekki?
Er aðgengilegt til 09. ágúst 2026.
Lengd: 25 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.