19:45
Kastljós
Ofbeldi í nánum samböndum, launavísitala og Þegar ég sé þig sé ég mig

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Halldórsdóttir, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Fjöldi ungmenna á Íslandi er beittur kynferðisofbeldi af jafnöldrum. Barnaheill standa fyrir sex ungmennaþingum um land allt á næstu vikum, til þess að ræða kynferðisofbeldi í nánum samböndum unglinga.

Hvað er kjaragliðnun og hvernig ætlar ríkisstjórnin að koma í veg fyrir hana? Kastljós skýrir málið og fer yfir varnaðarorð gagnrýnenda.

Kynnum okkur leikverkið Þegar ég sé þig sé ég mig.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,