
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.

Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.

Vinirnir Begga og Fress leika sér að tölum og leysa saman ýmsar þrautir og gátur.
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?

Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.

Litlu lundasystkinin Úna og Bubbi búa á eyjunni Lundakletti. Þau lenda sífellt í nýjum ævintýrum með vinum sínum.

Stærðfræðiofurhetjurnar Millý, Geó og Bói hjálpa krökkum að læra tölur, form og mynstur.

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt

Huggulegir þættir þar sem snjómaðurinn les úr sínum uppáhaldsbókum fyrir litlu mýsnar í bókabúðinni.

Friðþjófur forvitni er forvitinn og yndislegur api sem getur oft á tíðum verið full ævintýragjarn. Fylgjumst með ævintýrum hans og mannsins með gula hattinn eiganda hans.

Töfratú er fantasíuland dásamlegra álfa og hafmeyja þar sem raunveruleg viðfangsefni á borð við systkinaerjur, sanngirni og sjálfstraust eru könnuð nánar.

Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist og njóta tónanna sem óma um Hljómbæ.

Brot úr tónlistarþáttunum Tónatal í umsjón Matthíasar Más Magnússonar.
Mugison flytur Stingum af.

HM í frjálsíþróttum innanhúss í Póllandi.

Bikarmót í áhaldafimleikum í Egilshöll.

Beinar útsendingar frá landsleikjum í handbolta.
Landsleikur Íslands og Svíþjóðar í handbolta.

Lottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Ný íslensk heimildarþáttaröð í umsjón Ara Eldjárns um íslenskar kvikmyndir. Í hverjum þætti er ein sígild kvikmynd tekin fyrir. Skyggnst er á bak við tjöldin og áður óséð myndefni birt. Rætt er við leikstjóra, handritshöfunda, framleiðendur, leikara, búninga- og leikmyndahönnuði, kvikmyndastjóra, klippara og fleira fagfólk, sem ljóstra upp ýmsum leyndarmálum frá gerð myndanna.
Fjallað er um gerð stórmyndarinnar Englar alheimsins frá árinu 2000. Meðal þeirra sem fram koma eru Ingvar E. Sigurðsson, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Sigvaldi Kárason, Hilmar Örn Hilmarsson, Einar Már Guðmundsson og Friðrik Þór Friðriksson.

Íslensk kvikmynd frá 2000 eftir Friðrik Þór Friðriksson sem byggð er á sögu Einars Más Guðmundssonar um ungan mann og glímu hans við alvarlegan geðsjúkdóm. Leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson. Aðalhlutverk: Ingvar E. Sigurðsson, Baltasar Kormákur, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Hilmir Snær Guðnason og Margrét Helga Jóhannsdóttir.

Bandarísk stórmynd frá 1997 í leikstjórn James Cameron. Fátækur listamaður og stúlka af aðalsætt fella hugi saman í örlagaríkri jómfrúarferð stærsta farþegaskips sinnar tíðar, Titanic. Myndin hlaut ellefu Óskarsverðlaun. Aðalhlutverk: Leonardo DiCaprio og Kate Winslet. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

HM í frjálsíþróttum innanhúss í Póllandi.

HM í frjálsíþróttum innanhúss í Póllandi.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.