Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rætt er við Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra um stöðuna í Landsvirkjun eftir uppsögn Harðar Arnarsonar fyrrverandi forstjóra. Staða stjórnar fyrirtækisins rædd og samskipti innan fyrirtækis og við ráðuneyti fjármála. Einnig er gerð grein fyrir nýrri rannsókn um gengjamyndun í hópum unglinga á Ísland þar sem sýnt er fram á að allt að 900 ungmenni á höfuðborgarsvæðinu tengist gengi eins og þau eru skilgreind af alþjóðlegum stofnunum.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Spurningakeppni framhaldsskólanna 2001. Spyrill er Logi Bergmann Eiðsson, Ármann Jakobsson er dómari og höfundur spurninga og stigavörður er Þóra Arnórsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans á Akureyri og Verslunarskóla Íslands. Keppt er á Akureyri. Keppendur í liði MA: Hjálmar Stefán Brynjólfsson, Jón Eggert Víðisson og Reginn Hólm Ketilsson. Keppendur í liði Verslunarskólans: Sigríður Reynisdóttir, Einar Björgvin Sigurbergsson og Stefán Einar Stefánsson.
- Endursýnt

Nokkrar hugrakkar manneskjur lesa upp úr dagbókum sínum frá unglingsárunum og deila með okkur dýpstu leyndarmálum ungdómsins, þegar allt er upp á líf og dauða og bóla á enninu er alvarlegri en efnahagshrun.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Sigmar ræddi við Sigurð Guðmundsson fyrrum landlækni sem gegndi embættinu um tíu ára skeið. Hann telur að þeir sem hafni því að láta bólustetja börnin sín sýni því fólki sem er útsett fyrir alvarlegum sjúkdómum vanvirðingu. Hann starfaði sem læknir í Malaví og varð það svo djúpstæð reynsla að hann talar um lífshlaup sitt í tveimur hlutum, fyrir og eftir Malaví. Hann er einnig ekki hrifinn af því fyrirkomulagi að fólk eigi helst að hætta að vinna þegar það verður sjötugt.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Sænskir þættir þar sem litið er heim til þekktra arkitekta í Svíþjóð. Við fáum að sjá einstök og áhugaverð heimili þeirra og hvað þeim finnst gera hús að góðu heimili.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Ævintýri Tulipop er skemmtileg þáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop. Á hverjum degi gerast ný ævintýri á eyjunni sem sem geta haft áhrifaríkar afleiðingar í för með sér en vináttuböndin reynast ævinlega traust.
Búa tekst að búa til risastórt fallegt náttljós úr húsinu sínu. Það er undur fallegt og lýsir upp nóttina. En þegar Búi vaknar morguninn eftir er allt annað upp á teningnum. Náttljósið hefur laðað til sín her gúmmígúbbakríla, sem þekja allt húsið. Gúmmígúbbakrílin, sem samkvæmt Herra Barra, laðast að ljósi, hafa villst af leið og vinirnir þurfa að finna leið til að hjálpa þeim aftur í Nátthellana, til síns heima.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Þáttaröð um ungt og áhugavert fólk. Skyggnst er inn í líf einnar persónu hverju sinni og henni fylgt eftir í daglegu lífi sínu. Umsjónarmaður er Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Stjórn upptöku og myndvinnsla er í höndum Eiríks I. Böðvarssonar.
Ragnhildur Steinunn heimsækir vísindamanninn Kára Helgason í Goddard-geimrannsóknarstöð NASA í Maryland í Bandaríkjunum. Þar fæst Kári við rannsóknir á uppruna fyrstu vetrarbrauta alheimsins og hlaut meðal annars, fyrstur Evrópubúa, verðlaunastyrk frá Goddard-stöðinni fyrir störf sín.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Vikinglottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Helstu íþróttafréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending

Afhending Íslensku menntaverðlaunanna á Bessastöðum, þar sem verðlaunað er fyrir framúrskarandi skólastarf, verkefni og kennslu. Dagskrárgerð: Sigurður Þorri Gunnarsson, Adelina Antal og Þór Freysson. Stjórn upptöku: Þór Freysson.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Dönsk leikin þáttaröð frá 2024. Allsherjarrýming stendur yfir í Danmörku vegna hækkandi sjávarborðs og þjóðin býr sig undir að yfirgefa heimili sín. Menntaskólaneminn Laura stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun: á hún að fylgja móður sinni, föður eða kærastanum sem hún elskar? Aðalhlutverk: Amaryllis April Maltha August, Albert Rudbeck Lindhardt og Nikolaj Lie Kaas. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Sænskur heimildarþáttur frá 2024 um streitu og kulnun þar sem leitast er við að svara því hvers vegna sífellt fleiri glíma við einkenni kulnunar og hvað er hægt að gera til að reyna að koma í veg fyrir langvinna streitu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Þriðja og síðasta þáttaröð þessara sannsögulegu dönsku þátta. Árið er 1968 og þrátt fyrir velgengni carmenrúllanna á heimsvísu er fyrirtækið í fjárhagsvandræðum. Axel þarf að taka stórar ákvarðanir til að bjarga fyrirtækinu, með ófyrirséðum afleiðingum fyrir alla sem standa honum nærri. Aðalhlutverk: Morten Hee Andersen, Maria Rossing, Lars Ranthe og Nicolai Jørgensen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Leikir í forkeppni EM kvenna í körfubolta.
Leikur Írlands og Íslands í forkeppni EM kvenna í körfubolta 2029.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Bein útsending

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Beinar útsendingar frá Skrekk, hæfileikakeppni grunnskólanna í Reykjavík. Kynnar: Anna Sigrún Davíðsdóttir og Daníel Óskar Jóhannesson.
Bein útsending af undankvöldum Skrekks 2026, hæfileikakeppni grunnskólanna í Reykjavík. Dagskrágerð Þuríður Daviðsdóttir. Stjórn útsendingar Margrét Júlía Ingimarsdóttir.
- Bein útsending