Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Hvað ef áföll í móðurkviði hafa áhrif á heilsu okkar mörgum áratugum síðar? Rætt við Graham Music, breskan sérfræðing í áhrifum áfalla á þroska barna. Einnig rætt við Önnu Maríu Jónsdóttur, geðlækni og Margréti Ólafíu Tómasdóttur, heimilislækni.
Almyrkvi á sólu í ágúst mun að líkindum laða fjölda fólks til landsins og valda álagi á innviði, sérstaklega á vestanverðu landinu. Rætt við Runólf Þórhallsson, sviðstjóra almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, um undirbúning fyrir almyrkvann.
Dögg Guðmundsdóttir er ein þátttakenda í dönskum raunveruleikaþáttum þar sem hönnuðir keppast um að hanna muni sem taldir eru líklegir til þess að standa tímans tönn. Lokaþáttur seríunnar var sýndur í danska sjónvarpinu í kvöld en fram að því hafði Dögg borið sigur úr býtum í tveimur þáttum af fimm.
