Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1998. Spyrill: Davíð Þór Jónsson. Dómari og spurningahöfundur: Gunnsteinn Ólafsson. Stigavörður: Katrín Jakobsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans við Sund og Menntaskólans við Hamrahlíð. Lið Menntaskólans við Sund skipa Ingi Björn Sigurðsson, Einar Magnús Einarsson og Pétur Már Pétursson. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Oddur Þórir Þórarinsson, Inga Þóra Ingvarsdóttir og Fjalar Hauksson.
- Endursýnt
Viðtals- og tónlistarþáttaröð í umsjón Jóns Ólafssonar. Jón fær til sín ýmsa tónlistarmenn í spjall og saman laða þeir fram ljúfa tóna. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Viðtals- og tónlistarþáttaröð í umsjón Jóns Ólafssonar. Jón fær til sín ýmsa tónlistarmenn í spjall og laðar fram í þeim ljúfa tóna fyrir áhorfendur. Í þessum þætti er Eivör Pálsdóttir gestur Jóns. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þáttaröð þar sem draugatrú Íslendinga tekin til skoðunar ásamt annarri þjóðtrú, á borð við hjátrú og trú á álfa. Rætt er við ýmsa sérfræðinga og þá sem hafa haft persónuleg kynni af afturgöngum, álfum eða framliðnum. Rýnt er í hvernig draugatrú endurspeglar samfélagið, menninguna og síðast en ekki síst, sálarlíf og samvisku mannsins. Umsjón: Bryndís Björgvinsdóttir. Dagskrárgerð: Rakel Garðarsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Önnur þáttaröð þar sem hin sænska Gina Dirawi ferðast um heiminn og heimsækir fólk sem hún heillast af. Stutt er á milli hláturs og gráts þegar viðmælendur segja frá lífshlaupi sínu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Sænskir matreiðsluþættir með vinkonunum Karoline og Elenore þar sem þær elda spennandi og gómsæta grænkerarétti úti í guðsgrænni náttúrunni.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt


Fyrsta þáttaröðin af hinni vinsælu Blæju. Blæja er sex ára hundur sem er stútfull af óstöðvandi gleði. Allir venjulegir hlutir geta orðið ævintýri hjá Blæju og fjölskyldu hennar.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Litlu lundasystkinin Úna og Bubbi búa á eyjunni Lundakletti. Þau lenda sífellt í nýjum ævintýrum með vinum sínum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Krakkafréttir bjóða áhorfendum í tímaflakk í þætti dagsins💫
1. 40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða 2. Smáralind 25 ára.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Dönsk þáttaröð um ungt par sem vill einfalda líf sitt og hefur búskap.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Íþróttafréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending

Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Bein útsending

Íslenskir heimildaþættir frá 2026. Í október 1986 ákváðu Ronald Reagan forseti Bandaríkjanna og Mikhail Gorbatsjev leiðtogi Sovétríkjanna að funda í Reykjavík, öllum að óvörum. Í þáttunum er fjallað um hvernig Íslendingar lögðu allt undir við að halda leiðtogafund risaveldanna með aðeins tólf daga fyrirvara. Hvaða áhrif hafði fundurinn á sálarlíf og sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar og hverjar voru afleiðingar hans? Leikstjóri: Árni Þór Jónsson. Framleiðsla: Republik.
Leiðtogarnir eru mættir til landsins og loka sig inni í Höfða. Rússar koma Bandaríkjamönnum á óvart með róttækum tillögum um kjarnorkumál sem gætu skipt sköpum fyrir heimsfrið. Fyrir utan Höfða eru taugar öryggisvarða þandar, fréttir berast af hryðjuverkamönnum á leið til Íslands og úti á Faxaflóa fer fram sjóorrusta.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Leikin þáttaröð frá 2025 byggð á sannsögulegum atburðum. Eftir að hersveitir Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í NATO yfirgefa Afganistan í ágúst 2021 líður ekki að löngu þar til Talibanar hefja að taka yfir hverja borgina á fætur annarri þvert á gefin loforð. Almennir borgarar, diplómatar og hermenn keppast við að komast í öruggt skjól áður en Kabúl fellur. Aðalhlutverk: Jonathan Zaccaï, Vassilis Koukalani og Darina Al Joundi. Handritshöfundar: Olivier Demangel og Thomas Finkielkraut. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Heimildarmynd þar sem fjallað er um eftirmála þáttaraðarinnar Bates gegn póstþjónustunni, sem varpaði ljósi á eitt stærsta réttarfarshneyksli í sögu Bretlands þar sem hundruð útibússtjóra hjá breska póstinum voru ranglega ákærð og dæmd fyrir fjársvik sem rekja mátti til galla í hugbúnaðarkerfi póstsins. Í myndinni er rætt við nokkra af útibússtjórunum um áhrif þáttaraðarinnar auk þess sem aðrir stíga fram og segja sögu sína í fyrsta sinn.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Norsk leikin þáttaröð frá 2025. Þegar nafn og andlit internettröllsins Toms er gert opinbert í kjölfar kvenfjandsamlegra ummæla hans ákveður hann að dulbúast sem kona til að forðast ofsóknir. Í kjölfarið öðlast hann nýja sýn á stöðu kynjanna. Aðalhluverk: Anders Baasmo, Ingrid Giæver og Jonas Strand Gravli. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.