
24 stærstu sveitarfélög landsins keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra þættinum. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason. Útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.
Spurningakeppni sveitarfélaganna. Lið Álftaness og Norðurþings eigast við. Lið Álftaness skipa: Edda Arinbjarnar, Einar Sverrir Tryggvason og Gunnsteinn Ólafsson. Lið Norðurþings skipa: Þorgeir Tryggvason, Kristveig Sigurðardóttir og Stefán Þórsson. Umsjónarmenn: Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir. Spurningahöfundur og dómari: Ólafur B. Guðnason. Aðstoð við dagskrárgerð: Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir. Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson.

Þættir frá árunum 1989-1990 í umsjón Jóns Gunnars Grjetarssonar. Kynntar eru helstu gönguleiðir á þeim stöðum sem heimsóttir eru. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.
Kvikmyndasafn Íslands geymir fjársjóð af kvikmyndum sem sýna íslenskan veruleika snemma á síðustu öld. Egill Helgason og Gunnar Tómas Kristófersson rýna efni og sýna efni sem jafnvel enginn hefur séð. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Farið er aftur í upphaf kvikmyndagerðar á Íslandi og fjallað um frumkvöðla eins og Bíó Pedersen, Loft Guðmundsson, Óskar Gíslason og Kjartan Ó. Bjarnason. Auk þess er rannsóknarstarfið á Kvikmyndasafni Íslands kannað.

Íslenskir lífstíls- og matarþættir þar sem þeir Dóri DNA og Gunnar Karl Gíslason, Michelin-kokkur, ferðast um landið, kynnast áhugaverðu fólki og fræðast um menningu, listir, mat og nýsköpun í nýtingu auðlinda. Á leið sinni á hvern áfangastað safna þeir hráefnum sem Gunnar Karl nýtir til matreiðslu í lok hvers þáttar með dyggri aðstoð heimamanna. Leikstjórn: Hannes Þór Arason. Framleiðsla: Gamli Blakkur, Fígúra og Lilja Jóns.
Í lokaþættinum heimsækja þeir félagar Austfirði og keyra alla leið í Skriðuklaustur til að prófa margrómað hádegishlaðborð. Þeir koma einnig í Vallanes og á Seyðisfjörð þar sem þeir borða á einum besta sushi-stað landsins. Að lokum keyra þeir að Skálanesi þar sem þeir elda hreindýr á hóðum við frumstæðar aðstæður og halda litla veislu.

Sænskir þættir um keramikgerð þar sem Ika Johannesson ræðir við fólk sem hefur lagt fyrir sig keramiklist og kynnist ýmsum aðferðum við að búa til muni úr leir.

Stuttir heimildarþættir um sambönd manna og hunda.

Stuttmyndir sem gerðar eru eftir handritum krakka sem að send voru inn í Sögur árið 2020.
Tinna 368 býr framtíðarheimi þar sem nánd og samskipti eru lítil sem engin og allir sitja límdir við snjalltækin. Einn daginn kynnist hún stráknum Bjarti 591 og eiga þau það sameiginlega áhugamál að lesa bækur. Þau eru á móti því að samskipti fari alfarið fram í gegnum tölvur og síma og ákveða þau að taka málin í sínar hendur.
Höfundur: Ester Mía Árnadóttir, 10 ára
Leikstjórn og framleiðsla: Anna Karín Lárusdóttir

Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.

Fjórða þáttaröðin um vinalega hundinn Sám og krílin sem vinna sér inn merki á leikskólanum hans.

Nokkrir kunnulegir og ókunnulegir fiskar kynna sig fyrir áhorfendum.

Mörgæsirnar Haddi og Bibbi haga sínu lífi eftir F-unum þremur. Fjör, fiskur og félagsskapur.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Náttúrulífsþættir frá BBC þar sem við fylgjumst með smávöxnum dýrum takast á við stórar áskoranir.
Þriðja þáttaröð finnskra spennuþátta um lögreglukonuna Hilkku Mäntymäki. Dóttir stjórnmálamanns á Kanaríeyjum og eiginmaður hennar finnast látin í finnsku borginni Oulu og Hilkka fær aðstoð fyrrum samstarfsfólks síns í spænsku lögreglunni við rannsókn málsins. Aðalhlutverk: Riitta Havukainen, Fran Pérea og Marìa Romero. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.

Veðurfréttir

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Maímánuður sló öll met í veðurblíðu á Íslandi, en hver er ástæðan? Hvað segir það okkur um breytingar á veðurfari í heiminum, og hvað hefur orðið um stjórnmálaumræðuna um umhverfismál og loftslagbreytingar? Í fyrri hluta þáttarins koma þau Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur, Anna Hulda Ólafsdóttir skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands, Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar til að ræða einmunatíð og umhverfismál. Í seinni hluta þáttarins verður rætt við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um málefni útlendinga og flóttamanna.

Breskir heimildarþættir sem skoða kvikmyndasöguna í gegnum linsu kvikmyndagerðakvenna. Þættirnir skiptast í 40 kafla sem taka fyrir ólíkar hliðar kvikmyndagerðar og eingöngu er stuðst við dæmi úr kvikmyndum sem konur leikstýra. Sögukonur eru Tilda Swinton, Jane Fonda, Debra Winger, Adjoa Andoh, Kerry Fox, Thandie Newton og Sharmila Tagore. Leikstjóri: Mark Cousins. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.