
24 stærstu sveitarfélög landsins keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra þættinum. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason. Útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.

Dagskrá um Guðrúnu Á. Símonar söngkonu sem var einn af mestu listamönnum þjóðarinnar um sína daga. Hún var vel menntuð í tónlist, jafnvíg á óperur og dægurtónlist, fyndin og frökk en innst inni feimin og hlý manneskja. Hún segir frá sjálfri sér, tónlistinni og köttunum sínum í viðtalsþáttum frá ýmsum tímum og syngur lög af ýmsu tagi. Umsjón og dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Hvaða íslensku dægurlög hafa hljómað fyrst og fremst á Rás 2 síðustu 40 ár? Hvað einkennir síðustu fjóra áratugi í íslenskri tónlist? Þessum spurningum og fleirum verður svarað í Fyrst og fremst, laufléttum þáttum sem fanga uppáhaldslögin af Rás 2 á 40 ára afmælinu. Umsjón: Kristján Freyr Halldórsson.

Sænski grínistinn Keyyo og þríburarnir sjá tækifæri í litlum rýmum og breyta þeim í snjöll og notaleg heimili.

Ferðaþættir í umsjá útivistarhjónanna Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall þar sem þau ferðast með fólki um ósnortna náttúru Íslands.
Við sláumst í för með hópum Íslendinga í tvær ævintýraferðir erlendis. Hin fyrri er klettagönguferð í Dólómítafjöllum á Ítalíu sem er ekki fyrir lofthrædda. Í hinni síðari er gengið á milli fjallakofa í víðernum Harðangurs í Noregi sem er ekki ferð fyrir kuldaskræfur. Í síðari hluta þáttarins klifra Jói Pé og Króli í Akrafjalli undir styrkri leiðsögn þrautreyndra klettaklifrara.
Orðbragð er skemmtiþáttur þar sem Bragi Valdimar Skúlason og Brynja Þorgeirsdóttir snúa upp á íslenska tungumálið, teygja það, toga og umfaðma, knúsa og blása í það lífi. Umsjónarmenn eru Bragi Valdimar Skúlason og Brynja Þorgeirsdóttir. Dagskrárgerð: Konráð Pálmason.
Í þriðja þætti leitum við að málfarslögreglunni. Hver ákveður hvað er rétt og hvað er rangt mál? Og á að flengja fólk fyrir að tala vitlaust? Við ræðum einnig við þekktan málsóða. Einn vinsælasti orðaleikur sem fyrirfinnst er krossgátan, sem er 100 ára í ár. Við skoðum hvers vegna sumt fólk er hreinlega sjúkt í þær - og etjum þeim saman í keppni. 80% af meiningu okkar kemst til skila með líkamstjáningu - ekki með orðum. Við köfum ofan í tungumál líkamans. Við förum yfir tíu undarlegustu þýðingarnar á kvikmyndatitlum og Bragi fer með nokkur gleymd orð í endurvinnslu.


Þessar þáttaraðir eru áhorfendum að góðu kunnar, enda eru þættirnir bæði afar fræðandi og skemmtilegir. Að þessu sinni fræðumst við um mannslíkamann.

Keppni í skapandi þrautum. Skaparar og keppendur hafa 10 mínútur til að klára þraut og taka þátt í Stórhættulegu spurningakeppninni. Þegar tíminn er hálfnaður draga keppendur babb-spjöld. Að sjálfsögðu endar þetta á vænni slímgusu. Dagskrárgerð: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson.
Krakkarnir þurfa að svara spurningunum: Ertu hrædd/hræddur við eitthvað? Hver er uppáhalds liturinn þinn? Svo þurfa þau að nefna eitt sagnorð. Þau mála svo mynd og smíða ramma utan um það.
Skaparar og keppendur eru: Elías Óli Tinnuson Björnsson, Óðinn Magnússon, Hrafnhildur Magnúsdóttir og Kolka Fenber Aleksander.

Í tilraunastofunni hjá Lísu gerist ýmislegt áhugavert. Ungir krakkar koma í heimsókn og hanna sínar eigin uppfinningar með henni og gera trylltar tilraunir.
Ólafía og Hekla eru uppátækjasamar og forvitnar vinkonur sem stelast til að framkvæma hinar ótrúlegustu vísindalegu tilraunir í skólanum sínum, með misgóðum árangri. Leikarar: Auður Óttarsdóttir og Guðbjörg Marý Eyjólfsdóttir.
Ólafía og Hekla laumast enn og aftur í tilraunastofuna. Þar fræðast þær um hvernig hljóð ferðast í vatni.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Ferðaþættir þar sem leikarinn Örn Árnason bregður sér í hlutverk leiðsögumanns og ferðast um áhugaverða staði við þjóðveginn eða örskammt frá. Frikki Frikk, tökumaður og ljósmyndari, er fylgdarsveinn Arnar í þessum ferðum og saman sýna þeir fram á að stundum er óþarfi að leita langt yfir skammt. Léttir þættir þar sem fjallað er um náttúru, sögu og menningu.
Í þættinum förum við austur yfir fjall og skoðum ýmsa staði nærri og á Selfossi – Kögunarhól, Tannastaði, hraunbolla undir brú, Hellisskóg og fleira.

Heimildarþættir sem fjalla um tónlistarmyndbönd nokkurra af stærstu poppstjörnum heims. Rætt er við leikstjóra, danshöfunda, gagnrýnendur og listafólkið sjálft.

Kokkurinn Nisha Katona ferðast um Ítalíu og kynnist matreiðslu í ýmsum héruðum.
Frönsk leikin þáttaröð um hina sautján ára gömlu Victoire sem er send gegn vilja sínum í skóla fyrir nemendur með fötlun. Með tímanum kynnist hún samfélaginu í skólanum og myndar vináttutengsl sem fá hana til að horfast í augu við eigin fordóma. Aðalhlutverk: Chine Thybaud, Stéphane De Groodt og Valérie Karsenti.

Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.

Veðurfréttir

Heimildarþáttaröð þar sem fjallað er um ævi, störf og arfleifð Hollywood-stjörnunnar Marilyn Monroe. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Sannsöguleg bresk þáttaröð frá 2023 um leitina að raðmorðingjanum sem kallaður er kviðristan frá Yorkshire. Sögur fórnarlamba hans og vinnubrögð lögreglunnar eru í forgrunni. Yfir þúsund lögregluþjónar tóku þátt í leitinni sem stóð yfir frá 1975 til 1981 og varð rannsóknin til þess að breska lögreglan breytti verklagi sínu til frambúðar. Aðalhlutverk: Jack Deam, Kris Hitchen og Lee Ingleby. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.