Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Fimm listar eru í framboði á Ísafirði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Kristján Þór Kristjánsson, Framsóknarflokki, Gylfi Ólafsson, Viðreisn, Jónas Þór Birgisson, Sjálfstæðisflokki, Sævar Óli Hjörvarsson, Miðflokki og Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir, Samfylkingu.
Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Þrír listar eru í framboði á Seltjarnarnesi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Þór Sigurgeirsson, Sjálfstæðisflokki, Skafti Harðarson, Miðflokki og Kristinn Ólafsson, Samfylkingu.

Spurningakeppni sveitarfélaga frá 2018. Þátttakendur að þessu sinni eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komust í úrslit árin á undan eða hafa oftast komist nálægt því. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundur og dómari er Jón Svanur Jóhannsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Danskir heimildarþættir í tveimur hlutum þar sem áhrif skjánotkunar á andlega og líkamlega líðan fólks eru rannsökuð. Í þáttunum tekur fjölskylda þátt í tilraun sem felur annars vegar í sér að eyða eins miklum tíma fyrir framan skjái og þau lystir og annars vegar að hætta allri skjánotkun og áhrif af hvoru tveggja eru skoðuð.
Í þessum þætti eiga fjölskyldumeðlimir að eyða eins miklum tíma í skjánotkun og þau lystir í eina viku. Að lokum eru andleg og líkamleg áhrif skjánotkunarinnar skoðuð.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar fjöllum við um rithöfundinn Jón Trausta sem Halldór Laxness kallaði einn mesta undramann íslenskrar sagnalistar. Jón Trausti var fæddur í örbirgð, vann hörðum höndum allt sitt líf, skrifaði epískar skáldsögur sem nutu mikilla vinsælda en andaðist í spænsku veikinni 1918. Guðrún Nordal ræðir við okkur um bókina Höfundur verður til en þar er fjallað um ævi og störf Jóns Trausta. Páll Ásgeir Ásgeirsson er ötull ferðamaður og ferðabókahöfundur - við hittum hann í slagveðursrigningu og tölum um bókina Ísland 175. Skáldið Heiða Vigdís Sigfúsdóttir spjallar við okkur og fer með kvæði úr nýrri bók sinni sem nefnist Í hæfilegu magni. Í Bókum og stöðum förum við í Norðurfjörð og Ingólfsfjörð á Ströndum og þar verða meðal annarra á vegi okkar Þórbergur Þórðarson, Karólína Söebeck, Jón Hreggviðsson og Halldór Laxness. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Perlu eftir Jónínu Leósdóttur, Þegar heimurinn fórst eftir Stefán Mána og Gula hundinn eftir Georges Simenon.


Tinna táknmálsálfur er sniðugur álfur sem býr í Blómabæ í Bláskógarbyggð. Hún lendir í ýmsum ævintýrum með vinum sínum Kötu kónguló og Tedda tannálfi og ef til vill lærum við líka svolítið táknmál.
Höfundur:
Laila Margrét Arnþórsdóttir
Leikur:
Tinna: Kolbrún Völkudóttir
Kata kónguló: Jan Fiurasek
Talsetning:
Tinna: Álfrún Helga Örnólfsdóttir
Kata kónguló: Erla Ruth Harðardóttir
Teddi tannálfur: Björgvin Franz Gíslason og Friðrik Friðriksson
Búningar: Helga Rún Pálsdóttir
Tinnu finnst einn veggurinn vera frekar tómlegur og dettur í hug að fá vin sinn til að mála mynd af sér til að setja á veggin. Málarinn kemur og byrjar að stilla Tinnu upp og en Tinnu finnst pínu erfitt að vera kyrr.
Jóga fyrir alla krakka í ævintýraheimi með dýrum og náttúru.
Ævintýrajóga hvetur börn til hreyfingar og að vera meðvituð um líkama sinn og líðan. Það gefur þeim verkfæri sem auðveldar þeim að líða vel í eigin líkama og takast á við daglegt líf. Jógakennari: Þóra Rós Guðbjartsdóttir. Framleiðsla: Erla Hrund Hafsteinsdóttir.
Við kynnumst hundinum, og skoðum saman af hverju hann er svona áhugaverður
Birta og Jean segja frá því hvernig þú getur orðið hugmyndasmiður. Hugmyndasmiður er sá sem fær hugmynd og hefur hugrekki og kraft til að láta hana verða að veruleika. Þau spjalla við íslenska hugmyndasmiði um uppfinningarnar þeirra og ræða hvers vegna hugmyndasmiðir eru mikilvægir fyrir bæði nútíð og framtíð. Umsjón: Birta Steinunn Sunnu Ægisdóttir og Jean Daníel Seyo Sonde. Þættirnir eru framleiddir af KrakkaRÚV í samstarfi við verkefnið Hugmyndasmiðir, sem fræðir krakka um nýsköpun. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á vefsíðunni hugmyndasmidir.is
Hugmyndir geta breytt heiminum! Hér fjalla Birta og Jean um stóru málin sem þarf að leysa, eins og plastmengun og matarsóun. Þau hitta líka Söndru hugmyndasmið hjá Carbfix.

Stuttir þættir þar sem við kynnumst merkiskonum mannkynssögunnar. Sumar eru frægar, aðrar eru óþekktar en allar eru þær töffarar og eldhugar.

Þessar þáttaraðir eru áhorfendum að góðu kunnar, enda eru þættirnir bæði afar fræðandi og skemmtilegir. Að þessu sinni fræðumst við um mannslíkamann.
Allir krakkar ættu að vera snillingar í því að fara eftir umferðarreglunum. Erlen er úti í umferðinni og kannar hvaða reglur krakkar, og reyndar fullorðnir líka, þurfa að kunna til að vera örugg í umferðinni.
Umferðarsnillingurinn Erlen vill vera örugg þegar hún ferðast í bíl og er þess vegna alltaf með beltin rétt spennt. Hún veit líka að þó það sé spennandi að sitja frammí - er nauðsynlegt að vera orðinn nógu stór til að mega það.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Unga fréttakonan Ásdís er þulur í fréttastúdíóinu í dag! 1. Föndrað með frambjóðendum 2. Blái hnötturinn tónleikar Stórsveitar Reykjavíkur.

Ástin er mikil ráðgáta og í þessum dönsku þáttum er gerð tilraun til að finna lykilinn að henni. Getur verið að hann sé að finna í magni persónulegra gagna? Til að sannreyna vísindin á bak við Big Data eru átta einhleypir einstaklingar paraðir saman út frá persónuupplýsingum. Mun ástin kvikna þegar fólkið fer að búa saman og kynnast nánar?

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.
Í þættinum segja Ari Eldjárn og Snjólaug Lúðvíksdóttir okkur frá þáttunum Taskmaster sem sýndir eru á Sýn.
Við kryfjum Laufeyjar-ævintýrið mikla með sérfræðingunum Sigtryggi Baldurssyni, Jóhönnu Helgu og Matthíasi Má.
Þátturinn endar vestur á Suðureyri, þar sem við heimsækjum hina dásamlegu Kötlu Vigdísi. Hún er að flytja aftur heim og ætlar að segja okkur allt um það og taka fyrir okkur lagið.

Egill Helgason tengir bækur við ýmsa staði á landinu.
Önnur þáttaröð dönsku dramaþáttanna um kokkana Michael og Nöju sem ákveða að gefa samstarfinu annað tækifæri og opna nýjan veitingastað saman. Málin flækjast þegar Naja fellur fyrir fjárfestinum þeirra, Cecilie, og vantraust Michaels eykst sífellt. Aðalhlutverk: Jesper Zuschlag og Julie Rudbæk. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Leikin þáttaröð um líf og störf lögreglumanna í Chicago. Aðalhlutverk: Jason Beghe, Jesse Lee Soffer og Tracy Spiridakos. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Spennu- og ævintýramynd frá 1993 með Sylvester Stallone í aðalhlutverki. Myndin segir frá landverðinum Gabe sem er sendur á fjall að bjarga hópi klifrara í vanda. Þegar þangað er komið kemur þó í ljós að hinir svokölluðu klifrarar eru í raun glæpamenn sem þurfa á aðstoð Gabe að halda til að finna þýfi sem hefur týnst á fjallinu. Leikstjóri: Reynny Harlin. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Fjórir listar eru í framboði á Skagafirði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Einar Eðvald Einarsson, Framsóknarflokki, Magnús Barðdal, Sjálfstæðisflokki, Eyþór Fannar Sveinsson, Byggðarlistanum, og Högni Elfar Gylfason, Miðflokki.

Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Þrír listar eru í framboði í Grindavík fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Ásrún Helga Kristinsdóttir, Framsóknarflokki, Guðbjörg Eyjólfsdóttir, Sjálfstæðisflokki og Magnús Már Jakobsson, Miðflokki.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.