Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1999. Spyrill: Logi Bergmann Eiðsson. Dómari og spurningahöfundur: Illugi Jökulsson. Stigavörður: Þóra Arnórsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans í Reykjavík og Fjölbrautaskóla Suðurlands í fyrri undanúrslitum. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa Sverrir Guðmundsson, Arnar Þór Stefánsson og Hjalti Snær Ægisson. Lið Fjölbrautaskóla Suðurlands skipa Herdís Sigurgrímsdóttir, Eyjólfur Þorkelsson og Sigursveinn Már Sigurðsson.
- Endursýnt
Þáttaröð þar sem draugatrú Íslendinga tekin til skoðunar ásamt annarri þjóðtrú, á borð við hjátrú og trú á álfa. Rætt er við ýmsa sérfræðinga og þá sem hafa haft persónuleg kynni af afturgöngum, álfum eða framliðnum. Rýnt er í hvernig draugatrú endurspeglar samfélagið, menninguna og síðast en ekki síst, sálarlíf og samvisku mannsins. Umsjón: Bryndís Björgvinsdóttir. Dagskrárgerð: Rakel Garðarsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Stuttir þættir um sögurnar á bak við áhugaverðar ljósmyndir. Í hverjum þætti er fjallað um eina ljósmynd og sögu hennar – hvað var að gerast þegar myndin var tekin, hverjar voru aðstæður fólksins á ljósmyndinni og hvert er samhengið við nútímann? Leikstjóri: Þorsteinn J. Framleiðsla: Þetta líf, þetta líf.
Gunnsteinn Ólafsson fer yfir sögu föður síns, Ólafs Jens Péturssonar, og segir frá slysi sem hann lenti í við Reykjavíkurhöfn þegar hann fékk bómu í höfuðið og var fluttur alvarlega slasaður á sjúkrahús. Ólafur var síðar fluttur með sjúkraflugi til Kaupmannahafnar og fór þar í aðgerð. Hulda Emilsdóttir, mágkona Ólafs sem fór með honum til Kaupmannahafnar, segir frá því hvernig slysið horfði við henni og ferðinni út.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Serían gerist í litríkum og súrsætum skrímsla heimi þar sem fjölbreytt skrímsli búa í sátt og sæti. Í hverjum þætti kynnumst við nýju skrímsli sem býr yfir vægast sagt sérstökum eiginleikum. Kíkjum við og sjáum hvað setur, kannski við getum kynnst þeim aðeins betur.
Finni Krumpa prumpuskrímsli fólk í vanda, tekur hún til sinna handa. Hún sturtar í sig nokkrum rúsínum og þá þýtur hún prumpandi af stað. Hún flýgur um allt, hátt og lágt með prumpuský í eftirdragi. Best að halda niðri í sér andanum skyldi hún fljúga fram hjá!
- Endursýnt

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Vetrarfrí, hundar og hrekkjavakan eru í sviðsljósinu í dag❄️🐶👻
1. Hvað eru krakkar að gera í vetrarfríinu? 2. Hvolpakaffihús í Kópavogi. Við ljúkum svo þættinum á ýmsum verum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Dönsk þáttaröð um ungt par sem vill einfalda líf sitt og hefur búskap.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Íslensk tónlistarmyndbönd.
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Helstu íþróttafréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending

Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Bein útsending

Heimildarþættir frá 2024 þar sem leikkonan og grínistinn Sue Perkins ferðast frá París til Istanbúl. Á leiðinni kynnist hún líflegri menningu, fallegu landslagi og áhugaverðu fólki.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Finnsk leikin þáttaröð frá 2026. Anna er lítilmagni í finnska skíðagöngulandsliðinu og er tilbúin til að fórna öllu til að komast í hóp þeirra bestu. Hún grípur tækifærið þegar henni býðst að æfa með dularfullu skíðadrottningunni Mariu. Á milli þeirra myndast eitruð samkeppni þar sem aðeins önnur þeirra getur staðið uppi sem heimsmeistari. Aðalhlutverk: Roosa Söderholm, Sannah Nedergård og Kreeta Salminen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Áströlsk þáttaröð byggð á samnefndri skáldsögu eftir Liane Moriarty. Sophie Honeywell erfir hús á lítilli eyju í grennd við Sydney. Nokkrum áratugum áður hvarf par á eyjunni og fljótlega eftir komuna þangað áttar Sophie sig á að hún er full af leyndardómum. Aðalhlutverk: Teresa Palmer, Miranda Richardson og Danielle Macdonald. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Norsk leikin þáttaröð frá 2025. Þegar nafn og andlit internettröllsins Toms er gert opinbert í kjölfar kvenfjandsamlegra ummæla hans ákveður hann að dulbúast sem kona til að forðast ofsóknir. Í kjölfarið öðlast hann nýja sýn á stöðu kynjanna. Aðalhluverk: Anders Baasmo, Ingrid Giæver og Jonas Strand Gravli. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.