Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Íslensk þáttaröð í átta hlutum. Einlægar og opinskáar frásagnir fólks sem býr við aðstæður í daglegu lífi sem eru ólíkar öllu sem flestir eiga að venjast. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir. Framleiðsla: SERES hugverkasmiðja
Ástþór Skúlason er bóndi á Melanesi á Rauðasandi og vill hvergi annars staðar búa og starfa. Ástþór lamaðist neðan mittis í bílveltu snemma árs 2003.
Þáttaröð í sex hlutum þar sem fjallað er um sameiginlegar minningar íslensku þjóðarinnar á léttan og nýstárlegan hátt. Umsjónarmennirnir Margrét Blöndal og Felix Bergsson leggjast í fullkomlega óvísindalega mannfræðirannsókn til að reyna að skilja íslensku þjóðina betur á hundrað ára afmæli fullveldisins. Meðal þess sem þau skoða eru dellurnar sem þjóðin hefur gengið með í gegnum tíðina, nekt á Íslandi, og svo verða séríslensku sunnudagarnir sérstaklega kannaðirr. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Bergsson og Blöndal velta fyrir sér listrænum og minna listrænum dónaskap í gegnum tíðina. Þjóðin stóð á öndinni yfir Panhópnum, nektardansmeyjum sem fylgdu íslenskum sveitaballahljómsveitum og Japana sem dansaði hvítmálaður og nakinn á Lækjartorgi. Við sögu koma einnig kvikmyndirnar Táknmál ástarinnar og Veldi tilfinninganna og uppnámið sem varð í kringum þær. Spurningin er - hvenær er dónaskapur listrænn og hvenær ekki?


Fallegir teiknimyndaþættir um óvenjulega vináttu bjarnarins Ernests og músarinnar Célestine.

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt

Stutt innslög frá þeim Jasmín og Jómba þar sem þau tala um tónlist og tónfræði.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Fimm ára krakkar í Vestmannaeyjum sendu lögreglunni bréf 2. Er vorið loksins komið? 3. Barnamenningarhátíð hófst í dag. Endum þáttinn á VÆB bræðrum flytja lag hátíðarinnar í ár!

Dönsk þáttaröð um ungt par sem vildi einfalda líf sitt og hóf búskap.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.

Sænsk heimildarþáttaröð frá 2025 sem varpar ljósi á lífið í Svíþjóð á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Í tilefni af því að 80 ár voru frá stríðslokum deilir sænska þjóðin persónulegum minningum úr stríðinu í formi bréfa, kvikmynda, ljósmynda og dagbóka. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Finnsk leikin þáttaröð frá 2025. Tuttugu árum eftir að nágranni og æskuást Linnéu hverfur sér hún hann óvænt í sjónvarpinu. Linnéa einsetur sér að komast að því hvers vegna hann hvarf og opnar í kjölfarið á gamalt leyndarmál sem tengist fjölskyldum þeirra beggja. Aðalhlutverk: Sannah Nedergård, Sebastian Blomqvist og Rasmus Slätis. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Önnur þáttaröð þessara dönsku sakamálaþátta. Lögreglumaðurinn Rolf Larsen kemst á snoðir um mansalshring þegar 19 Víetnamar finnast myrtir í farmrými vöruflutningabíls. Aðalhlutverk: Anders W. Berthelsen, Olivia Joof Lewerissa og Zofia Wichlacz. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Heimildarþáttaröð frá BBC þar sem Ben Zand rannsakar líf og störf nokkurra alræmdustu glæpamanna heims. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.