
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi þarf að halda öllum öruggum í fótboltaleik dagsins, sérstaklega þeim sem eru algjörir klaufar!
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Þættir þar sem Snorri Helgason og Bergur Ebbi fjalla um íslensk dægurlög og setja í samhengi við tísku og tíðaranda. Þættirnir eru byggðir á vinsælu hlaðvarpi þeirra sem hóf göngu sína árið 2014.
Snorri Helgason og Bergur Ebbi fíla lagið Láttu þér líða vel og setja það í samhengi við tísku og tíðaranda. Þetta sívinsæla lag eftir Grétar Örvarsson og Aðalstein Ásberg Sigurðsson er að finna á plötunni Tvö líf sem Stjórnin sendi frá sér 1991. Leikstjórn: Allan Sigurðsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Gestir þáttarins eru Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, Ólafur Ásgeirsson og Margrét Bjarnadóttir.
Berglind Festival færir landsmönnum Fréttir Vikunnar ásamt Sölku Gústafs, sem er fréttamaður á vettvangi.
Selma Björns flytur blöndu af bestu lögum Dolly Parton ásamt hljómsveit.
Guðni Þór Ólafsson er með Sögu til næsta bæjar.
Klara Einars lokar þættinum með sumarsmellinum Ef hann myndi.
- Endursýnt
Heimildarþættir um fjölmenningu í íslensku samfélagi. Mannflóran er fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr og þjóðarímyndin breytist með auknum fjölda fólks af erlendum uppruna. Ljósi er varpað á erfiðleikana sem fólk af erlendum uppruna mætir í íslensku samfélagi og fjallað um kosti fjölmenningar. Umsjón: Chanel Björk Sturludóttir.
Í þættinum er fjallað um kynþáttahyggju og rætt við fólk sem á það sameiginlegt að tilheyra minnihlutahópum í samfélaginu vegna kynþáttar eða uppruna. Sjónum er beint að áhrifum kynþáttahyggju á daglegt líf fólks sem er ekki hvítt á hörund.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Heimildarþáttaröð um baráttuna við COVID-19 þar sem fylgst er með störfum þeirra sem stjórnuðu aðgerðum í faraldrinum. Í þáttunum er einblínt á mannlega hlið faraldursins og sagt frá sorgum og sigrum í baráttu þjóðarinnar við að hemja útbreiðslu veiru sem setti heimsbyggðina á hliðina. Leikstjóri: Sævar Guðmundsson. Framleiðendur: Sævar Guðmundsson, Jóhannes Kr. Kristjánsson, Anna Karen Kristjánsdóttir og Brynja Gísladóttir.
Ragnar veikist af COVID-19 og fjölskylda hans liggur á glugganum og hvetur hann áfram. Þríeykið skipuleggur aðgerðir á landamærunum til að koma í veg fyrir að smit berist til landsins.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Íslensk heimildarmynd um hjónin Steinu og Woody Vasulka sem voru frumkvöðlar í gerð vídeólistar á heimsvísu. Hjónin kynntust í listaskóla í Prag við upphaf sjöunda áratugarins og fluttust síðar til Bandaríkjanna. Þar stofnuðu þau meðal annars virt sýningar- og tónlistarrými í New York og gegndu prófessorsstöðum við háskólann í Buffalo. Nú eru þau á eftirlaunaaldri og voru í fjárhagskröggum þegar þau voru skyndilega enduruppgötvuð af listaheiminum sem skaut þeim upp á stjörnuhimininn á ný. Leikstjóri: Hrafnhildur Gunnarsdóttir. Framleiðandi: Margrét Jónasdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Finnlands-sænskir heimildarþættir um ungt fólk og hugmyndir þeirra um framtíðina.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Tólfta þáttaröð breska myndaflokksins Ljósmóðurinnar, sem er byggður á sannsögulegum heimildum um ljósmæður og skjólstæðinga þeirra í fátækrahverfi í austurborg London á sjöunda áratugnum. Meðal leikenda eru Vanessa Redgrave, Laura Main, Jenny Agutter og Stephen McGann.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Íslensk þáttaröð sem fjallar um ævina frá upphafi til enda. Einblínt er á eitt æviskeið í einu og skoðað hvað hver kynslóð er að fást við. Sagðar eru sögur af fólki á öllum aldri og tekist á við stórar spurningar. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson og Sigríður Halldórsdóttir.
Í þessum þætti er fjallað um unglingsárin. Hafa unglingar eitthvað breyst í tímans rás eða hefur umhverfið bara breyst? Unglingar, foreldrar þeirra, sérfræðingar, ömmur og aðrir velta fyrir sér unglingsárunum og áskorununum sem þeim fylgja. Og af hverju er maður boðinn velkominn í fullorðinna manna tölu þegar maður fermist? Er það ekki bara eitthvert algjört bull? Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson og Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt


Sjötta serían af Hvolpsveitinni þar sem uppáhalds hvolparnir okkar lenda í nýjum ævintýrum og leysa skemmtilegt verkefni.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Hvernig hugsa helstu listamenn og hugsuðir Svíþjóðar og hvaðan sækja þau sér innblástur og hvatningu? Í þessum þáttum er rætt við sænska meistara um sköpunarferlið, ákvarðanatöku og það hvernig mistök geta leitt til nýrra sigra.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Lottó-útdráttur vikunnar.
- Bein útsending

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Íþróttafréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Spennandi spurningaþáttur í beinni útsendingu þar sem baggalúturinn Guðmundur Pálsson og sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir halda um stjórnartaumana. Fulltrúar bæjarfélaga um allt land spreyta sig á spurningum, glíma við heilabrot og leysa ýmsar þrautir. Hvaða lið stendur uppi sem landsmeistari? Stjórn útsendingar: Sturla Skúlason.
Ísafjörður mætir Seltjarnarnesi. Keppendur frá Ísafirði eru Sunna Karen Einarsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Greipur Gíslason. Keppendur frá Seltjarnarnesi eru Eva María Jónsdóttir, Killian G.E. Briansson og Melkorka Gunborg Briansdóttir.
- Bein útsending

Bíómynd eftir Friðrik Þór Friðriksson frá 1994. Í myndinni er fylgst með tímabili í lífi Tómasar, tíu ára drengs, árið 1964. Myndin gerist bæði í Reykjavík og í Skagafirði, þangað sem Tómas er sendur til sumardvalar í sveit til fullorðinna föðursystkina sinna og á einu ári upplifir hann átök milli borgarsamfélags í mótun og kyrrstæðs sveitasamfélags. Meðal leikenda eru Örvar Jens Arnarsson, Rúrik Haraldsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Orri Helgason, Jón Sigurbjörnsson og Guðrún Ásmundsdóttir. Myndin hlaut mikið lof og vann til ýmissa verðlauna, meðal annars sem besta kvikmynd Norðurlanda árið 1994.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Bandarísk verðlaunamynd frá 2000 í leikstjórn bræðranna Joels og Ethans Coen. Myndin gerist í Suðurríkjum Bandaríkjanna á fjórða áratugnum og segir frá ævintýralegum leiðangri þriggja strokufanga sem leita að földum fjársjóði. Aðalhlutverk: George Clooney, John Turturro og Tim Blake Nelson. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Breskur sakamálaþáttur um hinn slungna séra Brown sem er ekki bara kaþólskur prestur heldur leysir glæpsamleg mál á milli kirkjuathafna. Aðalhlutverk: Mark Williams.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
Í fyrsta hluta Vikuloka dagsins verður rætt um stöðuna í stjórnmálunum, skítapottinn og skilaboðin. Viðmælendur eru Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdastjóri Athygli og fyrrverandi aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur, Áslaug Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Sjúkratryggingum Íslands og fyrrverandi aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttir og Viktor Orri Valgarðsson, stjórnmálafræðingur.
Í öðrum hluta er rætt við Willum Þór Þórsson, forseta Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, meðal annars um Heimi Hallgrímsson, Ísrael, forvarnir og landsleik.
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra er gestur þriðja hluta, þar verður meðal annars rætt um boðað náttúru- og innviðagjald, hvalveiðar og nýja stofnun atvinnuveganna.
- Bein útsending