
Litla Ló býr með Kisu, bróður sínum Húgó, foreldrum sínum - og líka álfinum Búa sem býr í holu í veggnum. Búi er algjör töframaður og á hverjum degi býður hann Litlu Ló og Kisu í nýtt ævintýri úti í náttúrunni.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.

Ibbi er sjálfsöruggur, forvitinn og hefur ótrúlegan áhuga flest öllu því sem fyrirfinnst í daglegu lífi. Hann er mjög hjálpsamur og hleypur iðulega undir bagga með öllum þeim sem þurfa á aðstoð að halda.

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt.

Huggulegir þættir þar sem snjómaðurinn les úr sínum uppáhaldsbókum fyrir litlu mýsnar í bókabúðinni.

Róbert og hressu hvolparnir í Hvolpasveitinni eru komin aftur og takast á við ný verkefni og nýja þorpara eins og þeim einum er lagið.

Töfratú er fantasíuland dásamlegra álfa og hafmeyja þar sem raunveruleg viðfangsefni á borð við systkinaerjur, sanngirni og sjálfstraust eru könnuð nánar.

Þættir um óteljandi ævintýri Strumpanna og Kjartans galdrakarls sem fara hér á kostum í Strumpabæ.

Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir.
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?

Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi Strútapabbi hefur áhyggjur af því að harða sælgætið muni brjóta tennurnar á sínu ástkæra barni!

Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.

Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist og njóta tónanna sem óma um Hljómbæ.
Ferðaþættir í umsjón Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall. Að þessu sinni fara þau hjónin með gönguhóp um stórbrotið fjalllendi heima og erlendis. Það reynir á líkama, sál og samheldni í ólíkum tegundum útivistar.
Lagt er upp frá Núpstaðaskógi og haldið yfir Skeiðarárjökul í átt að Skaftafellsfjöllum. Þetta er löng og krefjandi gönguleið, með allt á bakinu, um eitt tilkomumesta jökul- og fjalllendi landsins. Leiðin er aðeins á færi fárra hópa á hverju ári. Á jöklinum blasir við síbreytilegur heimur sprungna, jökulalda og svartra sanda, umlukinn hæstu fjöllum Íslands.

Ævintýraleg þáttaröð um fjóra félaga sem ferðast um heiminn á skútu. Í hverri höfn leika þeir svo sirkuslistir fyrir borgarana áður en þeir sigla á næsta áfangastað.
Heimildarmynd frá 2025 þar sem 100 ára saga Laugaskóla í Reykjadal er rakin. Fjallað er um áhrif skólans á menntun, íþróttaiðkun og menningarstarf á Norðurlandi og rætt við fyrrverandi nemendur og starfsfólk. Leikstjóri: Ottó Gunnarsson.

Heimildarþáttaröð um baráttuna við COVID-19 þar sem fylgst er með störfum þeirra sem stjórnuðu aðgerðum í faraldrinum. Í þáttunum er einblínt á mannlega hlið faraldursins og sagt frá sorgum og sigrum í baráttu þjóðarinnar við að hemja útbreiðslu veiru sem setti heimsbyggðina á hliðina. Leikstjóri: Sævar Guðmundsson. Framleiðendur: Sævar Guðmundsson, Jóhannes Kr. Kristjánsson, Anna Karen Kristjánsdóttir og Brynja Gísladóttir.
Alice og Dave koma í trúlofunarferð til Íslands sem endar með ósköpum. Mikið óveður er á Vestfjörðum og smit koma upp á hjúkrunarheimili í Bolungarvík. Landsmenn hamstra mat og hlífðarfatnaður er á þrotum en þríeykið finnur leið til að fá sendingu til landsins.

Tólfta þáttaröð breska myndaflokksins Ljósmóðurinnar, sem er byggður á sannsögulegum heimildum um ljósmæður og skjólstæðinga þeirra í fátækrahverfi í austurborg London á sjöunda áratugnum. Meðal leikenda eru Vanessa Redgrave, Laura Main, Jenny Agutter og Stephen McGann.

Leikur Grindavíkur/Njarðvíkur og Þróttar í úrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta.

Lottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Í vetur sýnir RÚV fjölda vel valdra Disney-teiknimynda og kvikmyndaáhugafólk fjallar um hverja mynd.
VÆB bræðurnir Hálfdán og Matthías segja frá myndinni Leikfangasögu 3, eða Toy Story 3, frá árinu 2010.
Talsett Disney-teiknimynd frá 2010 um leikföng sem lifna við þegar eigandi þeirra, Addi, hverfur úr sjónmáli. Viddi, Bósi Ljósár og félagar standa frammi fyrir mikilli óvissu um framtíðina þegar Addi býr sig undir að fara í háskóla. Hvað verður um leikföngin þá?

Tónlistarmenn koma í Stúdíó RÚV og færa landsmönnum tónlist heim í stofu. Stjórn upptöku: Þór Freysson. Þættir frá 2023.

Kvikmynd frá 2000 eftir Ragnar Bragason. Myndin fjallar um þrjár kynslóðir í sömu fjölskyldunni sem búa allar undir sama þaki í miðbæ Reykjavíkur. Ellilífeyrisþeginn Karl gengur með grasið í skónum á eftir gamalli kvikmyndastjörnu sem þjáist af minnisleysi og tíðum geðsveiflum. Júlía, barnabarn Karls, er barnshafandi og með tvo menn í takinu. Steingerður, móðir Júlíu, er yfir sig hrifin af Salómon, trúboða sem drekkur of mikið. Sögur persónanna fléttast saman þegar líður á og ýmislegt kemur á óvart. Aðalhlutverk: Björn Jörundur Friðbjörnsson, Eggert Þorleifsson, Kristbjörg Kjeld, Margrét Ákadóttir, Róbert Arnfinnsson og Silja Hauksdóttir.

Sannsöguleg kvikmynd frá 2016 í leikstjórn Stephens Hopkins. Sögð er saga frjálsíþróttamannsins Jesse Owens sem tók þátt í Ólympíuleikunum í Berlín árið 1936 fyrir hönd Bandaríkjanna. Berlín var þá undir stjórn nasista sem vildu að leikarnir sýndu fram á yfirburði aríska kynstofnsins en Owens bauð þeim hugmyndum birginn. Aðalhlutverk: Stephan James, Jason Sudeikis og Eli Goree. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Leikir á HM kvenna í körfubolta.
Leikur Frakklands og Þýskalands í undanúrslitum á HM kvenna í kőrfubolta.

Leikir á HM kvenna í körfubolta.
Leikur Spánar og Bandaríkjanna í undanúrslitum á HM kvenna í kőrfubolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.