Góð ráð og æfingar sem tilvalið er að gera heima. Íris Rut Garðarsdóttir sjúkraþjálfari hefur umsjón með leikfiminni.
Styrktaræfingar fyrir handleggi. Sitjandi æfingar. Gott að hafa létt lóð eða vatnsflösku við hendina.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rætt við Önnu Hildi Guðmundsdóttur, formann SÁÁ, um deilur innan samtakanna, brotthvarf forstjóra og fagfólks vegna þeirra og ákvörðun stjórnarinnar um að sitja sem fastast þrátt fyrir deilurnar.
Rætt við Bergljótu Gunnarsdóttur sem hefur endurbyggt dúkkuhús í minningu vinkonu sinnar og gefið Kvennaathvarfinu.
Fjallað um íslenska hjólareiðafyrirtækið Lauf Cycles sem framleiðir fjallahjól og selur m.a. til Bandaríkjanna og áskoranir á leið fyrirtækisins frá því það var stofnað.

Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1995. Spyrill: Ómar Ragnarsson. Dómari og spurningahöfundur: Ólafur B. Guðnason. Stigavörður: Sólveig Samúelsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans í Reykjavík og Fjölbrautaskólans í Austur-Skaftafellssýslu í seinni undanúrslitum. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa Stefán Pálsson, Birgir Andri Briem og Guðmundur Björnsson. Lið Fjölbrautaskólans í Austur-Skaftafellssýslu skipa Hjalti Þór Vignisson, Gissur Jónsson og Arnór Már Fjölnisson.

Norskir þættir þar sem tvö lið keppast á um að greina hvað amar að sjúklingum. Í öðru liðinu eru læknar en í hinu liðinu er „venjulegt“ fólk sem má nota internetið sér til aðstoðar.
Finnskir þættir um Nooa, trans mann sem þráir að eignast barn og ákveður að hefja tæknifrjóvgunarferli. Á sama tíma og hann glímir við tilfinningasveiflurnar sem fylgja hormónameðferðinni þarf hann að takast á við fordóma samfélagsins.

Í tveimur þáttum fetar fornleifafræðingurinn Jonathan Lindström í fótspor frumbyggja Svíþjóðar og veltir vöngum yfir breyttum aðstæðum lands og lýðs.
Í safni sjónvarpsins er að finna efni allt frá stofnun þess en sjónvarpið hefur fylgt þjóðinni í sextíu ár. Helga Lára Þorsteinsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir demba sér á kaf í safnkostinn og sýna þjóðinni valda gullmola. Áhugaverð, forvitnileg og óvenjuleg brot úr sjónvarpssögunni sem sum hafa nýlega verið gerð aðgengileg. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Helga Lára Þorsteinsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir skoða stór og smá björgunarafrek sem fest hafa verið á filmu og finna má í safni sjónvarpsins.


Stuttir þættir þar sem við kynnumst merkiskonum mannkynssögunnar. Sumar eru frægar, aðrar eru óþekktar en allar eru þær töffarar og eldhugar.

Þessar þáttaraðir eru áhorfendum að góðu kunnar, enda eru þættirnir bæði afar fræðandi og skemmtilegir en að þessu sinni fræðumst við um jörðina. Þáttunum er ætlað að hvetja yngri áhorfendur til að verða ábyrgir borgarar og hjálpa þeim að skilja umhverfi sitt, svo þeir geti lagt sitt af mörkum til að vernda það.
Tveir strákar hjóla um landið og hafa meðferðis forláta tölvu sem segir þeim allt um þá staði sem þeir koma á. Leikið efni frá 2018.
Handrit: Íris Stefanía Skúladóttir.
Hlutverk ferðalanga: Jóhann Ingi Skúlason og Emil Örn Kristjánsson.
Rödd tölvu: Íris Stefanía Skúladóttir.
Fjórir krakkar eiga að vinna skólaverkefni um víkingatímabilið á Þjóðminjasafninu en leysa í staðinn ævafornan víking úr álögum. Krakkarnir þurfa að leysa sérstakar víkingaþrautir til að hjálpa víkingnum að komast til Valhallar - þangað sem fallnar víkingahetjur fara eftir að hafa dáið í bardaga.
Krakkarnir leysa gátuna á skinnhandritinu og sér til mikillar furðu uppgötva þau að næsta þraut tengist ljóðalist!

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Heimildarþættir þar sem saga íslenskrar hönnunar er rakin, allt frá fyrstu brautryðjendum til yngri kynslóða. Í hverjum þætti er sjónum beint að áhrifamiklum hönnuðum og verkum þeirra, samhengi þeirra við samtímann og arfleifð. Dagskrárgerð: Jakob Halldórsson.
Fjallað er um Svein Kjarval, innanhússarkitekt og frumkvöðul íslenskrar innanhússhönnunar.

Íslensk tónlistarmyndbönd.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.

Ferðaþættir í umsjón Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall. Að þessu sinni fara þau hjónin með gönguhóp um stórbrotið fjalllendi heima og erlendis. Það reynir á líkama, sál og samheldni í ólíkum tegundum útivistar.
Leikkonan Ilmur Kristjánsdóttir og rannsóknarblaðamaðurinn Jóhannes Kr. Kristjánsson slást í för um eitt fjölbreyttasta landslag íslenska hálendisins. Gengið er um Strútssvæðið, Hólmsárlón þverað á léttum göngubátum og að lokum hjólað yfir Mælifellssand. Ferðin reynir á ólíka færni og úthald en leiðir hópinn um óvenjulegt samspil eldfjalla, jökulvatns og auðna. Hér verða ferðalangarnir að laga sig að landinu og skipta um farartæki eftir því sem leiðin krefst.

Sænsk þáttaröð frá 2023. Marie Olsson Nylander heldur í ævintýraferð með systur sinni þar sem þær ferðast frá Svíþjóð niður til Sikileyjar. Á leiðinni stoppa þær á ýmsum stöðum í leit að forngripum fyrir heimili Marie á Sikiley.
Norsk leikin þáttaröð frá 2026. Sérnámslæknarnir Petra, Kissy, Samuel og Joakim fóta sig í nýju starfi á sjúkrahúsi. Saman takast þau á við langa og krefjandi vinnudaga sem tengir þau órjúfanlegum böndum. Aðalhlutverk: Elpida Stojcevska, Sofia Tjelta og Deniz Kaya. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Íslensk þáttaröð um Karen, 38 ára hjónabandsráðgjafa og þriggja barna móður, sem stendur frammi fyrir erfiðum ákvörðunum þegar hún kemst að því að eiginmaður hennar hefur verið henni ótrúr. Hún á erfitt með að fyrirgefa eiginmanninum en það versta sem hún getur hugsað sér eru svokallaðar pabbahelgar. Leikstjórn: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Marteinn Þórsson. Aðalhlutverk: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Framleiðsla: Zik Zak kvikmyndir og Ungar kvikmyndafélag. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Karen og Matti leita til hjónabandsráðgjafa í von um einhvers konar málamiðlun og sátt. Niðurstaðan er ekki sú sem Karen óskaði sér.

Leikin þáttaröð frá 2024 byggð á samnefndri skáldsögu eftir Alexandre Dumas. Sjómaðurinn Edmond Dantè er svikinn af þremur mönnum og ranglega fangelsaður á eyju við strendur Marseille. Mörgum árum síðar tekst honum að flýja fangelsið og leitar uppi fjársjóð sem samfangi hans sagði honum frá. Hann hefur nýtt líf undir dulnefninu greifinn af Monte Cristo og er staðráðinn í að ná fram hefndum á mönnunum sem sviku hann. Aðalhlutverk: Sam Claflin, Mikkel Boe Følsgaard og Ana Girardot. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Þriðja þáttaröð þessara pólsku spennuþátta um menntaskólakennarann Pawel Zawadzki. Þegar nemandi deyr í siglingu á vegnum skólans beinast spjótin að skipstjóranum, Bogdan, sem er faðir Pawels. Pawel er sannfærður um sakleysi föður síns en rannsóknin dregur ýmis leyndarmál fram í dagsljósið. Aðalhlutverk: Maciej Stuhr, Katarzyna Dabrowska og Roma Gasiorowska. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.