Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1997. Spyrill: Davíð Þór Jónsson. Dómari og spurningahöfundur: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. Stigavörður: Katrín Jakobsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Flensborgarskólans í Hafnarfirði og Verzlunarskóla Íslands. Lið Flensborgarskólans skipa Bjarki Jónas Magnússon, Magnea Erla Auðunsdóttir og Davíð Geirsson. Lið Verzlunarskóla Íslands skipa Óli Njáll Ingólfsson, Björgvin Ingi Ólafsson og Sigurður Guðmundsson.
- Endursýnt
Heimildarþáttaröð í sex þáttum þar sem íslensk ljósmyndun er skoðuð út frá sjónarhorni lista, landslags, samtímans, skrásetningar, fréttaflutnings, fortíðar og framtíðar. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Katrín Ásmundsdóttir. Stjórn upptöku og framleiðsla: Hrafnhildur Gunnarsdóttir.
Landslagsljósmyndun á sér langa hefð hér á landi enda af nægu að taka. Í frekar karllægum afkima ljósmyndunar hittum við helstu landslagsljósmyndara Íslands og skoðum hvaða hlutverki landslagsljósmyndun hefur gegnt í ímyndarsköpun íslensku þjóðarinnar síðan hún hófst og hver sérstaða hennar er með hliðsjón af fagurfræði, pólitík og markaðssetningu.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir.
Gagnrýnendur Miðstöðvarinnar fjalla um nýja íslenska sjónvarpsþætti: Boltamömmur í Sjónvarpi Símans og Dagbók lögreglunnar hjá SÝN+. Siggi skellir sér í bogfimisetrið og kynnist tónlistarmanninum YUNGAMLA og svo kemur leikaraparið Jakob Van Oosterhaut og Berglind Alda í heimsókn.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt


Önnur sería af Silfruskógi, sem er bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga. Lous, Meg, Glen og Kaz uppgötva að hópurinn þeirra er bara einn þeirra fjögurra sem taka þátt í leiknum um að bjarga heiminum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Önnur þáttaröð af Eilífu drama. Hvað gerist þegar besta vinkonan byrjar að hanga með einhverjum öðrum? Saga um vináttu sem rofnar og breytist. Þáttaröðin er á sænsku með íslenskum texta.
Þarf að hittast í alvörunni ef fólk er saman? Og hverjum er eiginlega boðið í partýið hjá Aishu?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Fjórir efnilegir knattspyrnuiðkendur. Einn draumur. Ekkert er sjálfgefið. Sumir berjast fyrir því að falla inn í hópinn, aðrir fyrir því að valda ekki vonbrigðum. Serían er á norsku með íslenskum texta.
Leon og Kamal koma í himnaríki fótboltans. Annar verður að taka erfiða ákvörðun.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Þrjár leiknar stuttmyndir, skrifaðar af ungum höfundum á aldrinum 9-12 ára. Handrit að myndunum voru valin í handritasamkeppni Sagna. Leikstjórn og framleiðsla: Anna Karín Lárusdóttir.
Svartholið fjallar um þau Diljá og Sólmund sem lenda í ansi undarlegum atburðum eftir að hafa rekist á skrítinn mann, þegar þau reyna að komast inná bannaða mynd í bíó. Handrit eftir Móeiði Ronju Davíðsdóttur.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Önnur þáttaröð um sænska fjölskyldu sem gerir upp gamalt hús á Sikiley.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Íslensk tónlistarmyndbönd.
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Íþróttafréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Bein útsending frá söfnunar- og skemmtiþætti til styrktar endurhæfingarmiðstöðinni að Reykjalundi í Mosfellsbæ. Brýn þörf er á uppbyggingu og markmiðið er að senda Reykjalund í eins konar endurhæfingu. Fjöldi listafólks, skjólstæðinga Reykjalundar og annars velgjörðarfólks kemur fram. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, Sigurður Þorri Gunnarsson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Fannar Sveinsson. Stjórn útsendingar: Salóme Þorkelsdóttir og Þór Freysson.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Bein útsending

Rómantísk gamanmynd frá 2016 um hina seinheppnu Bridget Jones sem hefur ákveðið að njóta þess að vera einhleyp og einbeita sér að starfsframanum. Þegar hún svo verður óvænt ólétt þarf hún að reyna að komast að því hver faðirinn er án þess að mennina tvo gruni að það sé annar í spilinu. Leikstjóri: Sharon Maguire. Aðalhlutverk: Renée Zellweger, Colin Firth og Patrick Dempsey. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Breskur sakamálaþáttur um hinn slungna séra Brown sem er ekki bara kaþólskur prestur heldur leysir glæpsamleg mál á milli kirkjuathafna. Aðalhlutverk: Mark Williams.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.