Útvarp
Sjónvarp
Útvarp
KrakkaRÚV
UngRÚV
MenntaRÚV
Beint
RÁS 1
RÁS 2
RONDÓ
Dagskrá
Leit
Þættir
Flöskuskeyti!
Bæði flöskuskeyti Ævars og Verkís eru komin aftur heim til Íslands. Ævar segir frá ferðalaginu og fær svo Arnór Þóri Sigfússon frá Verkís í heimsókn til að útskýra betur hvernig í…
Vísindamenn óska eftir fleiri heilum
Vísindafréttir verða allsráðandi í Vísindavarpi dagsins. Vísindakonu-LEGO, jógúrt og óeðlilega flókið hár eru bara nokkrar af fréttunum sem við ætlum að skoða.
Skjaldbökur og mengun sjávar
Í Vísindavarpi dagsins rannsökum við mengun sjávar og skoðum skjaldbökur.
Fuglar og fuglaskoðun
Í Vísindavarpi vikunnar skoðar Ævar fugla og hvernig maður getur skoðað þá.
Geimrusl, hjólabretti og tíu tær
Í Vísindavarpi dagsins fjöllum við m.a. um fyrsta geimfarið, geimrusl, hvers vegna við höfum tíu tær og tíu fingur og svo skoðum við sögu hjólabrettisins.
Talandi apar og ofurhetjuhvalir
Í Vísindavarpi vikunnar rannsökum við hvernig apar myndu hljóma ef þeir gætu talað, hvers vegna hvalir eiga það til að bjarga öðrum dýrum, við skoðum skó úr plastrusli og veltum því…
Nýtt sólkerfi!
Fyrir stuttu síðan fundu vísindamenn glænýtt sólkerfi! Ævar fær Sævar Helga Bragason stjörnufræðing í heimsókn og spyr hann allt milli himins og jarðar um þessa merku uppgvötun.
Dularfull geimhljóð
Í Vísindavarpi dagsins hlustar Ævar á furðuleg hljóð úr geimnum, skoðar kosti þess að horfa á kattamyndbönd á netinu og rannsakar skordýralýsi. Sérstakar þakkir fær vísindavefsíðan…
Uppvakningar, risaeðlur og flugufótspor
Í Vísindavarpi dagsins skoðar Ævar uppvakninga og risaeðluegg, geimfara, flugufótspor og fimm sekúndna regluna. Sérstakar þakkir fær vísindavefsíðan hvatinn.is.
Málvísindi
Í Vísindavarpi dagsins skoðum við hvernig tungumál verða til, hvað esperantó er eiginlega (Vísbending: Esperantó ekki eitthvað sem þú pantar á kaffihúsi) og hvert fallegasta íslenska…
Vísindafréttir
Í þættinum verður farið yfir helstu vísindafréttir í heiminum í dag; Farsímar sem tengja má við heilann, umhverfisvænar líkkistur og tónlist fyrir ketti er bara brotabrot af því sem…
Málið.is
Í Vísindavarpi dagsins setjum við íslenska tungumálið undir smásjánna og spjöllum við Evu Maríu Jónsdóttur, miðaldafræðing og starfsmann hjá Stofnun Árna Magnússonar.
Saga tölvunnar - Seinni hluti
Ævar heldur áfram að fjalla um sögu tölvunnar, internetið og erfiðasta tölvuleik sögunnar.
Saga tölvunnar - Fyrri hluti
Í Vísindavarpi dagsins rannsökum við sögu tölvunnar.
Af vingangi og öðrum gangtegundum
Í þætti dagsins rannsökum við hvernig piss getur hlaðið farsíma, skoðum hvort hægt sé að flýja fret og veltum því fyrir okkur hvernig það myndi ganga að fljúga flugvél á annarri plánetu.
Alls konar vísindi
Í Vísindavarpi dagsins förum við um víðan völl. Við skoðum alls konar vísindi, fjöllum um stærðfræði og hvers vegna hún er mikilvæg, skoðum hrakfarir vísindamanna, rannsökum tilfinningar…
Út í veður og vind
Elín Björk Jónasdóttir frá Veðurstofu Íslands kíkir í heimsókn og talar um hvernig maður lærir að verða veðurfræðingur, svarar spurningum um eldingar og segir frá því þegar hún elti…
Tölvunarfræðingar, heimspekingar og landkönnuðir
Í Vísindavarpi dagsins skoðar Ævar enn fleiri karla og konur úr sögu vísindanna. Tölvunarfræðingar, heimspekingar og landkönnuðir koma við sögu, ásamt manninum sem bjó til lotukerfið.
Eldflaugastelpur og aðrar vísindakonur
Í Vísindavarpi dagsins skoðar Ævar enn fleiri merkilegar konur úr sögu vísindanna.
Sögur af forritun og hvernig á að haga sér á netinu
Gestur þáttarins er Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir, nemi í hugbúnaðarverkfræði. Við spjöllum um hvað forritun er, hvernig forritun og fótbolti tengjast og hvað /sys/tur eru. Svo fer…
Á íslensku má alltaf finna svar ...
Í þætti dagsins kemur málvísindamaðurinn Bragi Valdimar Skúlason í heimsókn og segir okkur frá því hvers vegna honum finnist íslenska svona skemmtilegt tungumál. Svo ætlum við líka…
Jörð í hættu
Í þættinum í dag fáum við góðan gest; Margréti Hugadóttur. Hún ætlar að segja okkur frá verkefninu ,,Jörð í hættu!?"
Geimverur og grýlukerta-geimfarar
Í dag ætlum við að fjalla um geiminn. Við veltum því fyrir okkur hvort geimverur séu til, skoðum hvað gerist ef geimfari deyr í geimnum og rannsökum flottasta stjörnusjónauka í heimi…
Mistök og múmíur
Í þættinum í dag ætlum við að tala um mistök, bæði góð og slæm. Við opnum líka póstkassann og rannsökum múmíur.
Út fyrir endimörk alheimsins!
Í dag fáum við góðan gest í heimsókn; engan annan en Sævar Helga Bragason stjörnufræðing.
Enn fleiri konur í vísindum
Í þættinum í dag ætlum við að fjalla um vísindamenn úr mannkynssögunni sem allir eiga það sameiginlegt að vera konur. Við skoðum fyrstu konuna sem fór út í geim, fjöllum um hina einu…
Enn fleiri vísindamenn
Í þættinum í dag ætlum við að tala um fræga vísindamenn úr mannkynssögunni. Við skoðum Wright-bræður sem bjuggu til fyrstu flugvélina, Carl Linné, föður flokkunarfræðinnar og svo rannsökum…
Risaeðlur
Ævar fær afar áhugavert bréf í póstinum um risaeðlur og óskabein. Svo skoðar hann líka hvað það þýðir að vera í útrýmingarhættu.
Hor, farartæki og gróðurhúsaáhrif
Í Vísindavarpi dagsins skoðar Ævar hor, fjallar um sögu farartækjanna og rannsakar gróðurhúsaáhrif.
Ef ég væri orðin lítil fluga...
Í þætti dagsins fjallar Ævar um flugur. Ólöf Haraldsdóttir, býflugnabóndi, kíkir í heimsókn og segir okkur frá því hvernig maður ræktar býflugur á Íslandi og svo segir Ævar okkur frá…
110 þúsund plastpokar á dag!
Í þætti dagsins fjöllum við um jörðina okkar og hvernig henni líður. Rakel Garðarsdóttir kemur í heimsókn, en hún er algjör sérfræðingur í því hvernig má hugsa betur um umhverfið og…
Áramótaþáttur Ævars!
Gleðilegt nýtt ár! Í þessum síðasta þætti ársins 2015 rannsakar Ævar flugelda og hvernig þeir komast eiginlega á loft. Hann fær tvo góða gesti frá Hjálparsveit skáta í Reykjavík í…
Að baka regndropa
Í þætti dagsins ætlar Ævar að kenna okkur að baka regndropa og búa til okkar eigin jökul. Við skoðum líka íslensk skrímsli og heyrum sögu af ótrúlegu skeljaheimsmeti!
Ævar á afmæli
9. desember á Ævar afmæli og þess vegna ætlar hann að rannsaka afmælisdaga, heimsins stærstu afmælistertu og heimsækja gömlu sveitina sína sem hann ólst upp í þegar hann var lítill:…
Kartöflustöpputilraunir og risafótboltar
Í Vísindavarpi dagsins verður farið um víðan fótboltavöll. Við skoðum sögu þessarar vinsælu íþróttar á milli þess sem við gerum tilraunir og skoðum hinar ýmsu stórhættulegu þjóðsagnapersónur.
Hvalir, göng og dýpsta hola í heimi!
Ævar rannsakar Kjalarnesið, Hvalfjörðinn og hin hættulega djúpu Hvalfjarðargöng. Hann segir okkur þjóðsögu af stórhættulegum hval og kíkir ofan í dýpstu holu í heimi.
Hættulegasti staður í heimi
Ævar fær sent bréf þar sem spurt er um hættulegasta stað í heimi. Þetta er frábær spurning, en um leið spurning sem ekki er hægt að svara í einni setningu. Fyrst þarf að skoða heiminn,…
KrakkaRÚV og internetið
Ævar rannsakar internetið og allt (eða svona næstum því) sem því tengist. Hver var til dæmis fyrsti tölvupósturinn og hvað stóð í honum? Ævar spjallar líka við Sindra Bergmann Þórarinsson,…
Sprengju-Kata
Í dag fær Ævar bestu vinkonu sína í heimsókn, hana Katrínu Lilju - betur þekkta sem Sprengju-Kötu. Hann spyr hana um allt milli himins og jarðar, en þó sérstaklega út í það hvernig…
Risastórir hlaupbangsar og svefnsnuddur
Ævar kennir okkur þrjár tilraunir og opnar póstkassann sinn - sem er hreinlega að springa!
Dagur íslenskrar náttúru
Í þættinum í dag setjum við náttúru Íslands undir stækkunarglerið.
Af goshverum og kindum
Í þætti dagsins fjallar Ævar um goshveri, kindur, Perluklifur og hvað maður á eiginlega að gera ef það er svakalega vont veður úti.
Kíkt í póstkassann
Ævar opnar póstkassann sinn og svarar bréfum frá hlustendum. Hér verður talað um ketti og mannsheilann, ís sem skiptir um lit og risaskordýr.
Þingvellir
Ævar heimsækir Þingvelli, dembir sér á bólakaf í Íslandssöguna, rannsakar Alþingi (það er skemmtilegra en það hljómar, ég lofa) og veltir fyrir sér jarðfræðinni á bak við þennan merkilega…
Frá galdrafári til vélmenna
Við förum um víðan völl í vísindavarpi dagsins: Fjarflutningur, vélmenni, uppvakningar og galdrafár koma við sögu. Hlustaðu á þáttinn til að heyra meira.
Eureka!
Í þessum þætti rannsakar Ævar fjóra merka vísindamenn úr mannkynssögunni; Arkímedes, Leonardi Da Vinci, Charles Darwin og Albert Eintstein.
Í grænum sjó
Ævar rannsakar hafið, hvað býr þar, mengun af mannavöldum, LEGO-sjóslys og svaðilför til Surtseyjar.
Konur í vísindum
Í Vísindavarpi dagsins segir Ævar frá merkilegum vísindamönnum úr mannkynssögunni sem allir eiga það sameiginlegt að vera konur.
Háspenna/Lífshætta
Þáttur dagsins er einstaklega hættulegur. Hvað ætlarðu að gera ef þú lendir á eyðieyju? En ef þú sekkur í kviksyndi? Ævar segir sögur af lirfum, slími, flöskuskeytum og hversu erfitt…
Framtíðin
Í þætti dagsins veltir Ævar fyrir sér framtíðinni, hverju var búið að lofa okkur og hverju við gætum átt von á. Við fjöllum um geislasverð, svifbretti og geimferðir, klónun, risaeðlur…
Geimurinn
Í þætti dagsins lítum við til himins og rannsökum stjörnurnar. Sólkerfið, sprengistjörnur, rauðir risar, hvítir dvergar og hvernig maður fer á klósettið í geimnum - allt þetta og miklu…
Ísland
Landið okkar er ótrúlega spennandi land, fullt af jarðfæði- og sagnfræðilegum undrum. Í þætti kvöldsins rannsakar Ævar hvers vegna hér verða svo oft eldgos, hvernig jöklar skríða,…
Skrímsli
Í þætti kvöldsins rannsakar Ævar skrímsli, þar sem snjómaðurinn ógurlegi, Loch Ness-skrímslið, Lagarfljótsormurinn, draugar og geimverur koma við sögu. Hlustaðu ef þú þorir!
Talan einn
Við skoðum töluna einn - hvernig hún varð til og hvernig tölur hafa þróast með mannkyninu gegnum árin.
,