Peningar I
Til Sverris koma Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í hagfræði, og Jökull Sólberg, forritari, og ræða peninga af ýmsum sjónarhólum. Þetta er fyrri þemaþáttur um peninga.
Að þessu sinni ræðir Sverrir Norland við Stefán Jón Hafstein, sem sendi nýlega frá sér bókina Heimurinn eins og hann er. Umræðuefnin eru stór - loftslagsbreytingar, hungrið í heiminum, hrun veraldarinnar eins og við þekkjum hana - en líka listin og mennskan, mannkynssagan og hvernig takast megi á við áskoranir framtíðarinnar og lifa merkingarþrungnu og góðu lífi.

Í þættinum fær Sverrir Norland til sín skemmtilega gesti sem endurhugsa með honum heiminn.