
Spurt og spjallað
Spurt og spjallað 1958, 1. þáttur: Konur og fegurðarsamkeppnir
Árið 1958 hóf göngu sína í Ríkisútvarpinu þátturinn Spurt og spjallað sem Sigurður Magnússon (1911-1989) fulltrúi annaðist. Þátturinn var þannig uppbyggður að í byrjun hans var varpað fram spurningu um eitthvert áríðandi mál og síðan ræddu fjórir málmetandi menn þá spurningu fram og aftur. Í þessari nýju þáttaröð hefur Illugi Jökulsson klippt saman skemmtilegt og markvert efni úr þáttunum, sem segir sína sögu um samfélagið á hverjum tíma. Þá segir Illugi deili á þátttakendum, og fleira.
Í þessum fyrsta þætti er fjallað um efni fyrstu þáttanna árið 1958, sem því miður hafa fæstir varðveist en urðu býsna umtalaðir í blöðunum. Þar var meðal annars talað um fegurðarsamkeppnir, nafnbirtingar á afbrotamönnum og fleira.
Einnig má heyra Auði Þorbergsdóttur síðar borgardómara, Sigurð Ólason lögfræðing, Gísla Halldórsson verkfræðing og Gunnar Dal heimspeking ræða tvær spurningar - hvaða löst þau vildu helst að mannkynið gæti losað sig við og svo hvort konur eigi að koma nálægt fjármálastjórn heimila.
- Birt
- Aðgengilegt til
- Rennur ekki út
- Lengd
