Sinfóníutónleikar

Anna og Strauss

Bein útsending frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg.

Efnisskrá

Richard Strauss Þættir úr balletsvítunni Schlagobers

Anna Þorvaldsdóttir Before we fall (sellókonsert) - Íslandsfrumflutningur

Richard Strauss Svíta úr Elektru (úts. Manfred Honeck og Thomas Ille)

Hljómsveitarstjóri

Eva Ollikainen

Einleikari

Johannes Moser

Frumflutningur á nýjum sellókonserti eftir Önnu Þorvaldsdóttur telst stórviðburður í heimi samtímatónlistarinnar. Anna ereitt eftirsóttasta tónskáld dagsins í dag og verk hennar eru flutt reglulega af fremstu hljómsveitum heims. Sellóleikarinn Johannes Moser frumflytur verkið með Sinfóníuhljómsveit San Francisco og kemur í kjölfarið til Íslands. Moser er margverðlaunaður fyrir list sína og hefur komið fram sem einleikari með öllum helstu sinfóníuhljómsveitum austan hafs og vestan.

Skrif Richards Strauss fyrir hljómsveit eru einkar litrík og metnaðarfull. tónskáld eru honum fremri í nýta sér möguleikana sem búa í hljóðheimi sinfóníuhljómsveitar. Elektra er ein af þekktustu óperum Strauss og í þessari hljómsveitarsvítu úr verkinu birtist vel frumkraftur og dramatíska spenna sem upplifa í sjálfri óperunni. Enn fremur hljómar í upphafi tónleikanna tónlist úr eina balletti Richards Strauss sem ber það óvenjulega heiti Schlagobers, eða „Þeyttur rjómi“. Efniviðurinn er heimsókn nokkurra barna í kræsilegt bakarí í Vínarborg þar sem sætabrauð og kökur vakna til lífsins og þetta greina í safaríkri tónlistinni.

Frumflutt

4. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Sinfóníutónleikar

Sinfóníutónleikar

Hljóðritun frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg 30.maí sl

Þættir

,