Síðdegisfréttir

Síðdegisfréttir 1. júní 2025

Tónleikagestur sem lenti í troðningi í Laugardalshöll í gærkvöld segist sjaldan hafa séð fólk jafn hrætt og á þeirri stundu. 15 hafa leitað á bráðamóttöku eftir tónleikana, þar af nokkrir með beinbrot. Hjúkrunarfræðingur segir stórhættu hafa myndast.

Úkraínumenn gerðu árás innan landamæra Rússlands og hæfðu minnst fjörutíu sprengjuflugvélar. Aðgerðirnar eru sagðar hafa verið eitt og hálft ár í undirbúningi.

Dagleg notkun nikótínpúða heldur áfram aukast en hærra verð virðist draga úr neyslu. Áfram dregur úr reykingum.

Hvergi á landinu hækkar fasteignamat næsta árs meira en í Hörgársveit. Sveitarstjórinn býst við brugðist verði við með lækkun skatta.

Frumflutt

1. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisfréttir

Síðdegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,